Áskrift af öllum MasterClass námskeiðum Akademias
Áskriftartilboð á um 140 rafrænum námskeiðum Akademias.
Tilboðið veitir aðgang að yfir 140* rafrænum námskeiðum í 12 mánuði. Sjá í töflu neðst á síðu þau námskeið sem eru innifalin.
Námskeiðin eru fjarnámskeið á netinu. Þátttakendur fá aðgang að í 12 mánuði og geta horft og lært eins oft og þeir vilja á tímabilinu. Hægt er að læra í gegnum tölvuna en einnig með Akademias appinu (í boði í App store og Google Play)
Verð: 99.000 kr. í takmarkaðan tíma!
Tilboð á fimm eða þremur námskeiðum
Einnig er hægt að velja einhver þrjú eða fimm rafræn námskeið að eigin vali í körfu.
- Fimman: Fimm námskeið að eigin vali á 59.900kr.
- Þrennan: Þrjú námskeið að eigin vali á 49.900kr.
Við greiðslu er afsláttarkóðinn þrenna eða fimma sleginn inn sem afsláttarkóði

Eftir skráningu er sendur póstur frá Akademias sem veitir aðgang að öllum rafrænu námskeiðunum og öllum nýjum námskeiðum sem bætast við safnið á meðan áskrift er virk. Sækja þarf Akademias appið eftir skráningu.
Mörg stéttarfélög veita styrk fyrir allt að 90% af námskeiðsgjaldi. Vinnumálastofnun veitir jafnframt möguleika á styrk fyrir skjólstæðinga sína fyrir allt að 75% af námskeiðsgjaldi. Vinnustaðir geta einnig sótt um styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð (óháð starfsmanni) inná www.attin.is
Hafðu samband við Ásdísi Ásgeirsdóttur asdis@akademias.is ef þú hefur einhverjar spurningar.
Masterclass og styttri námskeið
Fræðsluþættir
-
Microsoft hugbúnaður (25 námskeið)
-
-
Hermann Jónsson
Copilot í OneDrive 2024
Heildarlengd: 21 mínúta.Copilot í OneDrive kynnir öflugan skráa samanburðareiginleika sem gerir notendum kleift að greina allt að 5 valdar skrár samtímis án þess að þurfa að opna þær hverja fyrir sig.
-
-
-
Hermann Jónsson
Fjarvinna með Microsoft 365 (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 38 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaÍ þessu námskeiði er skoðað hvaða forrit innan Microsoft 365 henta í fjarvinnu. Við skoðum hvaða forrit henta í samvinnu, samskipti og fleira.
-
-
-
Hermann Jónsson
Microsoft 365 - 20 ráð (Tips and tricks) (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 27 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaÁ námskeiðinu er farið yfir 20 ráð (tips and tricks) sem geta komið notendum Microsoft 365 vel.
-
-
-
Hermann Jónsson
Microsoft 365 2024
Heildarlengd: 39 mínútur.Á þessu námskeiði er mikilvægt að átta sig á því að hér er um grunnnámskeið að ræða í Microsoft 365.
-
-
-
Hermann Jónsson
Microsoft 365 á Apple Tölvu
Heildarlengd: 13 mínútur.Stutt yfirferð um uppsetningu á Office 365 á Apple tölvu. Gert er ráð fyrir að nemendur séu kunnugir Office 365 en vilji kynna sér muninn á að setja Office 365 upp á MacOS í stað Windows.
-
-
-
Hermann Jónsson
Microsoft 365 í Android síma (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 13 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaÁ þessu námskeiði skoðum við Microsoft 365 appið í Android síma.
-
-
-
Hermann Jónsson
Microsoft Bookings (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 29 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaMicrosoft Bookings er bókunarkerfi sem er hluti af Office 365. Með Microsoft Bookings getur þú sett upp bókunarsíðu þar sem viðskiptavinir geta bókað þjónustu sem þú hefur skilgreint.
-
-
-
Hermann Jónsson
Microsoft Clipchamp 2024
Heildarlengd: 42 mínútur.Microsoft Clipchamp er myndvinnsluforrit sem gerir þér kleift að búa til og breyta myndböndum beint í vafranum þínum eða í Clipchamp forritinu sjáflu.
-
-
-
Hermann Jónsson
Microsoft Copilot Pages 2024
Heildarlengd: 22 mínútur.Microsoft Copilot Pages er nýtt verkfæri innan Microsoft 365 Copilot sem er hannað til að auðvelda samstarf og samvinnu í rauntíma.
-
-
-
Rúna Loftsdóttir
Microsoft Excel 2025, Formúlur
Heildarlengd: 62 mínútur.Á þessu námskeiði er farið yfir hvernig hægt er að nota formúlur til þess að auðvelda sér t.d. framsetningu á gögnum og reikniaðgerðir sem Excel getur boðið upp á.
-
-
-
Rúna Loftsdóttir
Microsoft Excel 2025, Gagnavinnsla
Heildarlengd: 53 mínútur.Á þessu námskeiði er farið yfir það helsta í grunni Microsoft Excel.
-
-
-
Rúna Loftsdóttir
Microsoft Excel 2025, Gröf
Heildarlengd: 32 mínútur.Á þessu námskeiði er farið yfir það helsta í gröf Microsoft Excel.
-
-
-
Rúna Loftsdóttir
Microsoft Excel 2025, Pivot töflur
Heildarlengd: 14 mínútur.Pivot töflur eru að margra mati eitt öflugasta verkfæri í Microsoft Excel þar sem hægt er á auðveldan hátt að búa til og breyta, vel upp settum skýrslum.
-
-
-
Rúna Loftsdóttir
Microsoft Onedrive for Business 2025
Heildarlengd: 59 mínútur.Á þessu námskeið skoðum við OneDrive for Business sem er einskonar einkastaður okkar fyrir gögn innan fyrirtækisins.
-
-
-
Rúna Loftsdóttir
Microsoft OneNote 2025
Heildarlengd: 56 mínútur.Á þessu námskeiði skoðum við OneNote sem er rafræn stílabók þar sem hægt er að setja inn teikningar, hljóð- og myndupptökur, texta ofl.
-
-
-
Rúna Loftsdóttir
Microsoft Outlook (Texti á ensku o.fl. tungumálum í boði)
Heildarlengd: 77 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaMicrosoft Outlook er eitt mest notaða tölvupóst- og skipulagsforrit í dag og er mikilvægt verkfæri í daglegu starfi margra. Með Outlook er hægt að halda utan um tölvupóst, dagatöl, fundi og tengiliði á skilvirkan og skipulagðan hátt.
-
-
-
Rúna Loftsdóttir
Microsoft Planner 2025
Heildarlengd: 49 mínútur.Planner er í grunninn verkmiðatól sem er hluti af Microsoft 365 svítunni og tengist vel inn í Teams hugbúnaðinn.
-
-
-
Ágúst Björnsson
Microsoft Power Platform
Heildarlengd: 268 mínútur.Microsoft hefur undanfarin ár unnið markvisst að aukinni framleiðni fyrirtækja og einstaklinga og ein lykileiningin í því púsli er Power Platform. Í námskeiðinu er farið yfir hagnýt dæmi um hvernig hver eining er virkjuð í daglegum rekstri fyrirtækja og rýnt í dæmi um hvernig einingarnar vinna saman sem ein heild í beinni tengingu við önnur rekstrarkerfi fyrirtækja.
-
-
-
Rúna Loftsdóttir
Microsoft PowerPoint (Texti á ensku o.fl. tungumálum í boði)
Heildarlengd: 71 mínúta.Textun í boði: íslenska og enskaMicrosoft PowerPoint er mikið notað í námi, starfi og fundarhaldi. Forritið gerir notendum kleift að búa til skýrar, aðlaðandi og faglegar kynningar sem styðja við miðlun upplýsinga og hugmynda.
-
-
-
Rúna Loftsdóttir
Microsoft SharePoint 2025, Uppbygging
Heildarlengd: 71 mínúta.SharePoint er platform fyrir skjölun en einnig hægt að nota sem fullvaxið skjalavistunarkerfi.
-
-
-
Rúna Loftsdóttir
Microsoft Teams Grunnur 2025 (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 85 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaÁ þessu námskeið skoðum við Teams samskiptaforritið sem er hluti af Microsoft 365 umhverfinu
-
-
-
Hermann Jónsson
Microsoft Viva Engage 2024 (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 35 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaFyrirtæki sem þegar eru með Microsoft leyfi ættu að kynna sér sérstaklega Viva Engage sem er að finna í Microsoft Viva svítunni og er samhæft með Microsoft 365 umhverfinu.
-
-
-
Hermann Jónsson
Microsoft Viva Insights 2024 (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 32 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaViva Insights er hluti af Microsoft Viva sem er vettvangur fyrir starfsmannaupplifun sem er hannaður til að bæta velferð og afköst starfsmanna.
-
-
-
Tinna Fenger
-
Ágúst Björnsson
Power BI - Notkun og hagnýtar upplýsingar (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 48 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaPower BI frá Microsoft er öflugt verkfæri til þess að birta gögn, setja fram mælikvarða og mælaborð sem gefa innsýn í reksturinn.
-
-
-
Hermann Jónsson
Windows 11
Heildarlengd: 30 mínútur.Hvað er nýtt og hverju hefur verið breytt í Windows 11?
Í námskeiðinu er farið er yfir helstu nýjungar og skoðaður hver munurinn er á Windows 10 og Windows 11. -
-
-
Leiðtogar, samskipti og teymi (38 námskeið)
-
-
Eva Karen Þórðardóttir
Aðferðafræði Coaching fyrir stjórnendur (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 53 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaHvernig er hægt að kveikja áhuga og drifkraft hjá starfsfólki og hvernig getum við stýrt teymi til árangurs, eru spurningar og verkefni sem margir stjórnendur standa frammi fyrir. Coaching er eitt af helstu verkfærum stjórnandans til að ná árangri á þeim sviðum.
-
-
-
Helgi Guðmundsson
Agile á hversdagsmáli
Heildarlengd: 102 mínútur.Agile er viðskiptafílósófía og hreyfing sem hófst í hugbúnaðargeiranum fyrir um 20 árum síðan og hefur öðlast gífurlegar vinsældir. Agile hugmyndir og nálganir hafa dreift sér frá hugbúnaðargerð yfir í meðal annars stjórnun, mannauðsstjórnun, fjármál, markaðssetningu og sölu.
-
-
-
Ólafur Örn Nielsen
Árangursdrifin markmiðasetning með OKR
Heildarlengd: 103 mínútur.Á námskeiðinu er farið ofan í aðferðafræði OKR eða "Objectives & Key Results" sem hefur hjálpað fyrirtækjum á borð við Google, Amazon og Spotify að framkvæma stefnu með skýrum, sýnilegum og mælanlegum hætti.
-
-
-
Snorri Engilbertsson
-
Ásgeir Jónsson
Árangursrík tölvupóstsamskipti
Heildarlengd: 28 mínútur.Líður þér eins og tölvupósturinn stjórni deginum þínum? Finnst þér stundum eins og mikilvæg skilaboð týnist í flóðinu? Þá er þetta námskeið fyrir þig!
-
-
-
Dr. Eyþór Ívar Jónsson
Breytingastjórnun - skref Kotters
Heildarlengd: 20 mínútur.Á námskeiðinu er fjallað um hugtakið breytingastjórnun og myndlíkinguna um glóandi hraunjaðarinn. Farið er í gegnum skref Kotters og fjallað er um átak til árangurs.
-
-
-
Arnmundur Ernst Björnsson
Breytingastjórnun innleiðing fræðslumenningar
Heildarlengd: 40 mínútur.Breytingastjórnun er fyrir þá stjórnendur / yfirmenn sem munu taka þátt í fræðslustarfinu og leggja grunninn að fræðslumenningu á vinnustaðnum.
-
-
-
Berta Andrea Snædal
-
Guðmundur Arnar Guðmundsson
Fiskur! Jákvæð vinnustaðamenning (Texti á ensku o.fl. tungumálum í boði)
Heildarlengd: 25 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaNámskeiðið er byggt á hugmyndafræði bókarinnar Fiskur! eða Fish! sem notið hefur gríðarlegra vinsælda úti um allan heim.
-
-
-
Dr. Eyþór Ívar Jónsson
Flokkun verkefna (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 26 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaNámskeiðið fjallar um hvernig hægt er að flokka verkefna til þess að tryggja markvirka verkefnastjórnun.
-
-
-
Edda Hermannsdóttir
Framkoma (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 48 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaÖll þurfum við á einhverjum tíma að koma fram, hvort sem það eru kynningar í vinnu, stórir fyrirlestrar eða framkoma í fjölmiðlum.
-
-
-
Dr. Eyþór Ívar Jónsson
Framtíðarsýn
Heildarlengd: 26 mínútur.Fjallað er um framtíðarsýn og þróun hugtaksins. Velt er upp spurningunni af hverju framtíðarsýn er mikilvæg og fjallað um hvernig hægt er að móta framtíðarsýn.
-
-
-
Ingi Björn Sigurðsson
Frá hugmynd til framkvæmdar
Heildarlengd: 45 mínútur.Frá hugmynd til framkvæmdar - er námskeið/fyrirlestur sem var fluttur fyrir Ungar Athafnakonur. Farið er yfir hvernig við fáum hugmyndir.
-
-
-
Jón Vigfús Bjarnason
Hraðlestur á vinnustað (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 78 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaGeta allir lesið hraðar en þeir gera í dag? Myndi hjálpa þér að þurfa bara 1/3 eða 1/6 af tímanum sem þú setur í lestur í dag – og hafa þannig meiri tíma í önnur verk eða til að lesa enn meira?
-
-
-
Árný Daníelsdóttir
-
Sigríður Örlygsdóttir
Innleiðing jafnlaunakerfa og jafnlaunavottun (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 44 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaÞetta námskeið er aðallega hugsað fyrir stjórnendur. Lögbundið er að öll fyrirtæki og stofnanir með 25 eða fleiri starfsmenn að jafnaði á ársgrundvelli eigi að öðlast jafnlaunavottun eða jafnlaunastaðfestingu. Stjórnendum fyrirtækja og stofnana getur reynst erfitt að byrja ferlið að jafnlaunavottun.
-
-
-
Herdís Pála Pálsdóttir
Jafningjastjórnun (Texti á ensku o.fl. tungumálum í boði)
Heildarlengd: 92 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaJafningjastjórnun hefur marga kosti sem geta bætt starfsumhverfi og aukið árangur fyrirtækis.
-
-
-
Dr. Eyþór Ívar Jónsson
Leiðtoginn og stjórnunarstílar (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 71 mínúta.Textun í boði: íslenska og enskaNauðsynlegt er að hafa öfluga leiðtoga til að stýra starfi fyrirtækja, stofnana og jafnvel verkefnum. Auknar kröfur eru um að fólk í stjórnendastöðum skilji að hlutverk leiðtogans getur verið mismunandi og að ólíkar aðstæður geta kallað á ólíka stjórnunarstíla. Árangursrík fyrirtæki þurfa leiðtoga sem geta leitt breytingar eða tryggt að fólk nái saman og geti skapað árangur saman.
-
-
-
Haukur Skúlason
Lestur ársreikninga
Heildarlengd: 49 mínútur.Námskeiðið snýst um að útskýra í einföldu og stuttu máli hvað ársreikningar fyrirtækja eru, hvernig þeir eru uppbyggðir og hvaða upplýsingar þeir geyma. Í seinni hluta námskeiðsins er farið yfir árshlutareikning NOVA og byggt á þeim upplýsingum sem fram komu í fyrri hlutanum. Námskeiðið er fyrir alla sem hafa áhuga á ársreikningum en skortir grunn til að byggja á.
-
-
-
Ragna Klara Magnúsdóttir
Listin að hrósa (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 15 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaNámskeiðið fjallar um mikilvægi þess hvernig hrós getur stuðlað að jákvæðari samskiptum og vellíðan hjá einstaklingum.
-
-
-
Dr. Eyþór Ívar Jónsson
Lykilstarfsmenn og verðmætasköpun
Heildarlengd: 24 mínútur.Fjallað er um lykilstarfsmenn og tengsl starfsmanna við hugmyndir um verðmætasköpun fyrirtækja.
-
-
-
Herdís Pála Pálsdóttir
Mannauðsstjórnun og breytingar (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 49 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaMikið hefur verið rætt og ritað um framtíð vinnu, vinnustaða, vinnuafls og vinnumarkaðar. Hvernig verður eiginlega þessi framtíð vinnu og hvernig þurfa dagleg störf stjórnenda að breytast til að styðja sem best við rekstur fyrirtækja á vinnumarkaði framtíðarinnar?
-
-
-
Dr. Erla Björnsdóttir
-
Þóra Hrund Guðbrandsdóttir
Markmiðasetning (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 52 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaÍ þessu námskeiði er fjallað um markmiðasetningu, tímastjórnun og venjur. Farið er vel yfir þau skref sem liggja að baki farsællar markmiðasetningar og fjallað um ákveðnar gildrur sem algengt er að falla í þegar fólk setur sér markmið. Einnig er farið vel yfir tímastjórnun og kenndar leiðir til að hámarka nýtingu á tíma.
-
-
-
Dr. Eyþór Ívar Jónsson
Nýsköpun í hnotskurn
Heildarlengd: 29 mínútur.Á námskeiðinu er fjallað um nýsköpun í víðu samhengi, hugtakið skilgreint og fjallað um stig nýsköpunar.
-
-
-
Dr. Eyþór Ívar Jónsson
Samskipti og samræður (Texti á ensku o.fl. tungumálum í boði)
Heildarlengd: 56 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaSamskipti og samræður skipta gríðarmiklu máli þegar fólk vinnur saman, svo sem í hópum, deildum og sviðum. Íslendingar eru ekki þekktir fyrir góðar umræður og þurfa þess vegna umfram aðra að vera vakandi fyrir hvað gerir samskipti góð og samræður markvirkar.
-
-
-
Lilja Bjarnadóttir
Sáttamiðlun
Heildarlengd: 75 mínútur.Sáttamiðlun er aðferð til lausnar ágreinings þar sem hlutlaus sáttamiðlari aðstoðar aðila við að finna sínar eigin lausnir. Fjallað er um hugmyndafræði sáttamiðlunar, sáttamiðlunarferlið, hlutverk sáttamiðlara og hvaða verkfæri sáttamiðlari notar til að hjálpa fólki við að leysa úr ágreiningi sínum.
-
-
-
Dr. Eyþór Ívar Jónsson
Skapandi hugsun (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 26 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaÁ námskeiðinu er fjallað um hugtakið skapandi hugsun og hliðræna hugsun.
-
-
-
Guðmundur Arnar Guðmundsson
Skapandi vinnuumhverfi (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 42 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaHvað þarf til að vera leiðtogi í skapandi hugsun? Hvernig gera stjórnendur lærdóm og þekkingu að hluta af menningu fyrirtækisins? Þessum og fleiri spurningum svarar Guðmundur Arnar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Akademias, í námskeiðinu Skapandi vinnuumhverfi, sem byggir á stöðugum lærdómi.
-
-
-
Dr. Eyþór Ívar Jónsson
Stafræn umbreyting og leiðtogar
Heildarlengd: 66 mínútur.Stafrænar umbreytingar eru að gjörbreyta hvernig fyrirtæki starfa, hvernig neytendur versla og upplifa og hvernig starfsmenn vinna. Drifkraftur breytinga er alltaf að aukast og nú þegar er ljóst að flest störf munu breytast og skapandi eyðilegging mun gera úrelt þau fyrirtæki sem leitast ekki við að breytast í takt við tímann. Mikil þörf er fyrir stafræna leiðtoga sem skilja að stafræn umbreyting er ekki vegferð sem snýst um útlit heldur kjarnafærni fyrirtækisins.
-
-
-
Herdís Pála Pálsdóttir
Starfsfólk í fjarvinnu (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 45 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaÁ námskeiðinu er farið í gegnum hvernig fjarvinna er að þróast og hvað er mikilvægast að hafa í huga svo fjarvinna verði sem farsælust.
-
-
-
Dr. Eyþór Ívar Jónsson
Stefnumótun og skipulag
Heildarlengd: 76 mínútur.Stefnumótun og skipulag er grundvöllur árangurs fyrirtækja. Án skýrrar stefnu eiga fyrirtæki erfitt með framþróun og án skipulags sem styður stefnumótun verður stefna aldrei að veruleika. Öll fyrirtæki eiga að hafa skýra stefnu, skipulag sem styður við þá stefnu og tilgang sem gefur fólki ástæðu til að taka þátt í vegferðinni.
-
-
-
Dr. Eyþór Ívar Jónsson
Stjórnarhættir minni og meðalstórra fyrirtækja
Heildarlengd: 206 mínútur.Stærstu mistökin sem minni og meðalstór fyrirtæki gera er að hafa ekki stjórn sem hefur skýrt hlutverk og viðeigandi stjórnarmenn. Námskeiðið er hannað fyrir stjórnarmenn og framkvæmdastjóra sprotafyrirtækja og minni og meðalstórra fyrirtækja. Námskeiðið er hliðstætt við alþjóðlegt námskeið sem Dr. Eyþór Ívar Jónsson hefur hannað og stýrt í Svíþjóð og Danmörku um árabil.
-
-
-
Dr. Eyþór Ívar Jónsson
Stjórnarhættir og sjálfbærni fyrirtækja
Heildarlengd: 60 mínútur.Stjórnarhættir fyrirtækja skipta sífellt meira máli enda er ákvörðunarvald fyrirtækja hjá stjórnum þeirra. Víðast hvar skortir verulega upp á fagmennsku í íslenskum stjórnum og lítill skilningur á mikilvægi þess að nálgast sjálfbærni með sérstökum áhuga í stjórnum. Grunnurinn að árangursríku fyrirtæki er að hafa stjórn sem hefur virði fyrir félagið.
-
-
-
Herdís Pála Pálsdóttir
Stjórnun í fjarvinnu (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 69 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaÁ þessu námskeiði er farið yfir hvað stjórnendur fólks í fjarvinnu þurfa helst að hafa í huga.
-
-
-
Helgi Guðmundsson
Straumlínustjórnun (LEAN) á hversdagsmáli
Heildarlengd: 67 mínútur.Lean er hugtak sem margir kannast við að hafa heyrt um, oftast í sambandi við að gera verkferla í framleiðslu skilvirkari.
-
-
-
Dr. Eyþór Ívar Jónsson
Teymi - þróun og árangur (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 38 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaÁ námskeiðinu er farið yfir hvað er teymi og nokkrar þær helstu kenningar sem notaðar hafa verið til þess að efla teymisvinnu hjá fyrirtækjum.
-
-
-
Hrefna Guðmundsdóttir
Teymi og styrkleikar (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 17 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaStyrkleikapróf er verkfæri sem hjálpa okkur að beina sjónum að mannkostum, plúsunum, hvað hver og einn hefur fram að færa
-
-
-
Dr. Eyþór Ívar Jónsson
Tilfinningagreind og hluttekning (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 67 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaTilfinningagreind er sífellt að verða mikilvægari hæfni í leik og starfi þar sem samvinna og samstarf fólks skiptir sköpum. Tilfinningagreind (EQ) hefur jafnframt verið tengd við árangur í leik og starfi, vel umfram það sem hefðbundin greind (IQ) skilar. Þegar teymisvinna fer vaxandi í fyrirtækjum er mikilvægt að stjórnendur og allir þátttakendur hafi tilfinningagreind og sýni hluttekningu, til að auka líkur á árangursríkri teymisvinnu.
-
-
-
Dr. Eyþór Ívar Jónsson
Tímastjórnun og skipulag funda (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 89 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaLærðu einfalda tímastjórnun og hvernig á að skipuleggja árangursríka fundi.
-
-
-
Dr. Eyþór Ívar Jónsson
Uppsprettur nýsköpunar (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 36 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaÁ námskeiðinu er fjallað um uppsprettur nýsköpunar, hvaðan þær koma og fjallað er um í víðara samhengi.
-
-
-
Helgi Guðmundsson
Þjálfun í lausn ágreinings - ,,conflict coaching“ (Texti á ensku o.fl. tungumálum í boði)
Heildarlengd: 109 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaÍ námskeiðinu eru kynntar aðferðir og lausnir, sem hjálpa okkur að eiga heilbrigð og kraftmikil samskipti og leysa úr ágreiningsvandamálum með virku samstarfi og á skapandi hátt. Þetta námskeið kynnir til leiks kraftmikla nálgun til að betrumbæta hvernig við vinnum með skoðanaskipti og ágreining á vinnustöðum og í einkalífi.
-
-
-
Þjónusta, sala og markaðssetning (18 námskeið)
-
-
Grétar Theodórsson
Almannatengsl, samskipti við fjölmiðla og krísustjórnun
Heildarlengd: 155 mínútur.Í námskeiðinu lærir þú grunnatriði almannatengsla og hvernig þau nýtast fyrirtækjum í samskiptum við sína markhópa.
-
-
-
Arnar Gísli Hinriksson
Auglýsingakerfi Facebook og Instagram
Heildarlengd: 124 mínútur.Lærðu að ná meiri árangri með auglýsingum á Facebook og Instagram. Þátttakendur öðlast hagnýta þekkingu á að beita auglýsingakerfi Facebook og djúpan skilning á öllum þeim eiginleikum sem auglýsingakerfið býður uppá.
-
-
-
María Dröfn Sigurðardóttir
Erfiðir viðskiptavinir (Texti á ensku o.fl. tungumálum í boði)
Heildarlengd: 29 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaÍ námskeiðinu er farið yfir aðstæður þegar starfsfólk lendir í erfiðum samskiptum við viðskiptavini. Skoðað er hvernig rétt er að bregðast við óæskilegri eða óviðeigandi hegðun viðskiptavinar og tilfallandi óþægilegum aðstæðum.
-
-
-
María Dröfn Sigurðardóttir
Erfiðir viðskiptavinir, hlutverk stjórnenda (Texti á ensku o.fl. tungumálum í boði)
Heildarlengd: 20 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaÍ námskeiðinu er farið yfir aðstæður þegar starfsfólk lendir í erfiðum samskiptum við viðskiptavini. Farið er yfir mikilvæga þætti sem stjórnendur þurfa að huga að til að undirbúa starfsfólk og hvað hægt er að gera til að koma á og viðhalda réttum viðbrögðum.
-
-
-
Guðmundur Arnar Guðmundsson
Growth Hacking
Heildarlengd: 58 mínútur.Growth hacking aðferðafræðin er að umbylta markaðsdeildum og markaðsstarfi. Leiðandi fyrirtæki eins og Tesla, Facebook, Uber, Airbnb, Pinterest og íslensk fyrirtæki, svo sem Arion banki, Grid og CCP, hafa byggt markaðsstarf og nýsköpun á aðferðafræðinni sem hefur hjálpað þeim að ná miklum árangri.
-
-
-
María Dröfn Sigurðardóttir
Grunnur að góðri þjónustu (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 24 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaÁ námskeiðinu er fjallað um hvernig skal veita góða þjónustu, og gefin góð ráð til að mynda traust og opna á jákvæð samskipti við viðskiptavini.
-
-
-
Advania
-
Ellen Margrét Bæhrenz
Kortlagning á ferðalagi viðskiptavinar (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 11 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaCustomer journey mapping er ferli sem fyrirtæki nota til að skilja og bæta upplifun viðskiptavina sinna.
-
-
-
Berta Andrea Snædal
-
Guðmundur Arnar Guðmundsson
Ofurþjónusta
Heildarlengd: 75 mínútur.Að skapa einstaka og eftirminnilega þjónustuupplifun fyrir viðskiptavini er lykilþáttur í árangri fyrirtækja. Góð þjónusta er í dag orðin sjálfsagður hlutur og verða því fyrirtæki að ganga mun lengra til að skara fram úr. Þau þurfa að bjóða ofurþjónustu.
-
-
-
Auðunn Sólberg
-
Jón Andri Sigurðarson
Pipedrive - Vertu Séní í B2B sölupípu.
Heildarlengd: 57 mínútur.Pipedrive er einfalt en öflugt tól til að styðja við sölu til fyrirtækja. Hlutverk Pipedrive er að leiða söluteymi í gegnum söluferli og auka líkurnar á að sala lokist. Pipedrive er einnig með flottar skýrslur til að fylgjast með árangri. Nova notar Pipedrive til að styðja við sína sölu og í námskeiðinu sýna tveir starfsmenn Nova hvernig það er notað.
-
-
-
Bjarni Ben
Póstlistar með Mailchimp
Heildarlengd: 140 mínútur.Hámarkaðu árangur tölvupósta til viðskiptavina. Póstlistar eru meðal öflugustu markaðstóla fyrirtækja, en ekki alltaf nýttir til fulls. Í þessu námskeiði er farið yfir bestu leiðirnar í vali á kerfum, hönnun á tölvupóstum, sendingum, eftirfylgni og greiningum á árangri.
-
-
-
Guðmundur Arnar Guðmundsson
Sala og sölutækni (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 63 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaÞjálfun sölumanna og söluteyma er oft lykillinn að aukningu tekna og getur því verið besta fjárfesting fyrirtækja.
-
-
-
Berta Andrea Snædal
-
Guðmundur Arnar Guðmundsson
Samningatækni til árangurs - aðferðafræði FBI
Heildarlengd: 55 mínútur.Námskeiðið byggir á bókinni Never Split the Difference eftir Chris Voss en hann var í áratugi einn helsti samningamaður FBI en fór síðar að hjálpa fyrirtækjum og stofnunum að ná meiri árangri við samningaborðið með tækni FBI.
-
-
-
Berta Andrea Snædal
-
María Dröfn Sigurðardóttir
Stafræni veitingaskólinn (Texti á ensku o.fl. tungumálum í boði)
Heildarlengd: 59 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaStafræni veitingaskólinn er námskeið fyrir þá sem starfa í þjónustu veitinga og/eða afgreiða á bar.
-
-
-
Guðmundur Arnar Guðmundsson
-
Dr. Eyþór Ívar Jónsson
Stjórnun markaðsstarfs
Heildarlengd: 470 mínútur.Öll fyrirtæki þurfa stöðugt að endurhugsa markaðsstarfið sitt. Kauphegðun er alltaf að breytast, bæði á neytenda- og fyrirtækjamarkaði. Bæði til skamms og langs tíma. Það sem neytendur urðu að eiga í gær verður óþarfi í dag. Markmið námskeiðsins er að hjálpa fyrirtækjum í gegnum óvissutíma. Enn fremur að gera stjórnendur sjálfbæra við að skipuleggja og hrinda í framkvæmd nýrri sókn á markaðinn.
-
-
-
Ófeigur Friðriksson
Söluþjálfun B2B (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 25 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaMarkmið þessa sölunámskeiðs er að hjálpa sölufulltrúum að skilja af hverju við náum ekki að loka sölutækifærum sem blasa við okkur. Námskeiðið hjálpar söluráðgjöfum að líta inn á við og taka ábyrgð á eigin árangri í stað þess að firra sig ábyrgð og búa til afsakanir. Farið er í mikilvægi þess að tileinka sér einfalt og kraftmikið skipulag og að við getum náð ótrúlegum árangri með að æfa næstu skref, til að mæta betur undirbúin.
-
-
-
Berglind Ósk Bergsdóttir
Textaskrif fyrir vefsíður til að ná árangri á Google (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 27 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaVið setjum upp vefsíður til að fólk geti nálgast upplýsingar og jafnvel framkvæmt ýmsar aðgerðir. Til að setja upplýsingarnar fram á sem bestan máta er nauðsynlegt að skilja notendur okkar; hvaða fólk notar vefsíðuna, til hvers og af hverju? Þá getum við hafist handa við að skrifa texta, með okkar rödd og tón, á sem auðskiljanlegastan hátt.
Berglind Ósk er notendamiðaður textasmiður sem leiðir okkur í gegnum bestu leiðir til að skrifa góðan texta fyrir vefinn. -
-
-
Dr. Eyþór Ívar Jónsson
Verðmætasköpun fyrir viðskiptavini
Heildarlengd: 29 mínútur.Fjallað er um verðmætasköpun út frá markaðsfræðum og nýsköpun. Lögð er áhersla á verðmætasköpun fyrir viðskiptavininn og ávinning.
-
-
-
Berta Andrea Snædal
-
María Dröfn Sigurðardóttir
-
Guðmundur Arnar Guðmundsson
Þjónustusprettur
Heildarlengd: 55 mínútur.Þjónustusprettur er ný nálgun af námskeiði sem samanstendur af tveimur námskeiðum og nokkrum gagnvirkum æfingum sem unnar eru með aðstoð gervigreindar.
-
-
-
Heilsuefling og sjálfsrækt (21 námskeið)
-
-
Ásgerður Guðmundsdóttir
Að koma sér upp úr sófanum (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 25 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaAð koma sér upp úr sófanum er ætlað öllum þeim sem langar að venda sínum kvæðum í kross til að koma sér í betra form. Hér lærir þú að finna út í hvers lags formi þú ert akkúrat núna. Hvernig er best að byrja á því að koma sér í rútínu og setja sér markmið.
-
-
-
Tolli Morthens
Andleg heilsa með Tolla Morthens (Texti á ensku o.fl. tungumálum í boði)
Heildarlengd: 62 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaByrjaðu á sjálfum þér. Tolli Morthens fer yfir andlega heilsu sem, ásamt líkamlegri heilsu og góðum svefni, spilar lykilhlutverk í velgengni. Hann fer yfir stjórnlausan huga, streitu og ójafnvægi, núvitund og hugleiðslu, jafnvægi og hugarró og mikilvægi sjálfskærleiks.
-
-
-
Dr. Erla Björnsdóttir
Betri svefn með Dr. Erlu Björnsdóttur (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 45 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaDr. Erla Björnsdóttir fer yfir hvað er að gerast í líkama og sál þegar við sofum og hvers vegna svefn er okkur svona mikilvægur. Hún ræðir um hversu mikið við þurfum að sofa, áhrifin sem það hefur á okkur ef við sofum ekki nóg og hvernig við getum brugðist við svefnleysi. Í lokin fer hún yfir mikilvægar svefnvenjur sem gott er að venja sig á.
-
-
-
Hanna Lilja Oddgeirsdóttir
Breytingaskeiðið (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 18 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaÞað liggur fyrir öllum konum að fara á breytingaskeiðið á einhverjum tímapunkti æviskeiðsins. Á þessu námskeiði fer Hanna Lilja læknir yfir það hvað er að gerast í líkama kvenna frá kynþroskaskeiði yfir á frjósemisskeið og svo hvernig breytingaskeið kvenna getur verið einstaklingsbundið og margþætt.
-
-
-
Akademias
Handþvottur og sýkingavarnir
Heildarlengd: 4 mínútur.Í þessu stutta námskeiði er farið yfir það helsta sem skiptir máli þegar kemur að handþvotti, ásamt sýnikennslu.
-
-
-
Leifur Wilberg
-
Kristín Bára
-
Salvör Davíðsdóttir
-
Bjarney Hinriksdóttir
Hugleiðslur
Heildarlengd: 674 mínútur.Hvergi annarsstaðar kynnist þú sjálfri/sjálfum/sjálfu þér betur en í hugleiðslu og þú færð tækifæri til þess að koma auga á gömul mynstur og jafnvel sársauka sem hugleiðslan geta hjálpað þér að losna við og allt sem ekki þjónar þér, í leit þinni að meiri vellíðan.
-
-
-
Ari Halldórsson
Innhverf íhugun (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 29 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaInnhverf íhugun opnar dyrnar að fullum andlegum þroska. Víðtækar rannsóknir hafa sýnt að hún dregur úr streitu og kvíða sem kemur fram í auknum innri friði, sköpunarmætti, betri heilsu, árangri og hamingju.
-
-
-
Hrefna Guðmundsdóttir
Jákvæð sálfræði 101 (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 30 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaHér er farið yfir undirstöðuatriði jákvæðrar sálfræði og hamingjufræða og helstu leiðir til hagnýtingar fræðanna í eigin lífi og á vinnustað.
-
-
-
Addý Hrafnsdóttir
Jóga fyrir jafnvægi í hraða nútímasamfélags (Texti á ensku o.fl. tungumálum í boði)
Heildarlengd: 39 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaAð staldra við í amstri dagsins og gera stuttar öndunar- eða jógaæfingar, hjálpar til við að ná jafnvægi og hamingju í hraða nútímasamfélags. Jógaæfingar koma blóðflæði af stað og skerpa fókus. Ótrúlegt er hvað jóga og meðvituð öndun hefur róandi áhrif á taugakerfið og getur dregið úr stressi.
-
-
-
Indíana Nanna Jóhannsdóttir
Líkamleg heilsa með Indíönu Nönnu Jóhannsdóttur (Texti á ensku o.fl. tungumálum í boði)
Heildarlengd: 31 mínúta.Textun í boði: íslenska og enskaIndíana Nanna fer yfir líkamlega heilsu og hvernig hún tengist andlegri heilsu. Þá fjallar hún um hvernig hvatning virkar til að hefjast handa, halda áfram og búa til vana. Í lokin sýnir hún sniðugar hreyfingar sem hægt er að gera daglega.
-
-
-
Elísa Viðarsdóttir
Mátturinn í næringunni (Texti á ensku o.fl. tungumálum í boði)
Heildarlengd: 43 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaHvernig getum við tekið lítil skref í átt að bættum lífsstíl, hver er mátturinn í matnum og hver er ávinningurinn af því að lifa heilsusamlegra lífi?
-
-
-
Anna Dóra Frostadóttir
Núvitund (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 135 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaÍ námskeiðinu er núvitund kynnt og helstu ástæður fyrir því að við höfum þörf fyrir að þjálfa hana í nútímasamfélagi. Fjallað er um hvað felst í núvitundarþjálfun og helstu þáttum í ávinningi hennar, svo sem aukinni einbeitingu og hugarró, með minni streitu, depurð og kvíða. Einnig þáttum eins og bættum samskiptum og minni streitu, sem skilar sér í aukinni vellíðan bæði í einkalífi og starfi.
-
-
-
Þorvaldur Ingi Jónsson
Qigong - Skapandi mannauður í lífsorku og gleði (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 75 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaQi (Chi) er lífsorkan. Í 5000 ár hafa Kínverjar stundað Qigong til heilsueflingar og til lækninga. Æfingarnar byggja á djúpri Qigong öndun, mjúkum og styrkjandi hreyfingum, í samhljómi við nærandi hugleiðslu. Þær heila og styrkja líkamlegt og andlegt heilbrigði.
-
-
-
Ásgerður Guðmundsdóttir
Rétt líkamsbeiting - á skrifstofunni og heima
Heildarlengd: 58 mínútur.Þetta námskeið fjallar um rétta líkamsbeitingu við tölvuvinnu, bæði í fjarvinnu heiman frá og almennt á vinnustað.
-
-
-
Ásgerður Guðmundsdóttir
Rétt líkamsbeiting og vellíðan - í verklegri vinnu (Texti á ensku o.fl. tungumálum í boði)
Heildarlengd: 27 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaVinnur þú verklega vinnu þar sem reynir á líkamlegan styrk, svo sem að meðhöndla þungar byrðar eða í einhæfri álagsvinnu? Vilt þú fá leiðsögn, ráð og ábendingar um hvað hægt er að gera í forvarnarskyni gegn helstu stoðverkjum og streitu, til að viðhalda sem bestri heilsu?
-
-
-
Ásgerður Guðmundsdóttir
Rétt líkamsbeiting og vellíðan - í skrifstofuvinnu (Texti á ensku o.fl. tungumálum í boði)
Heildarlengd: 14 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaVinnur þú skrifstofuvinnu, þar sem langar setur og einhæfni einkenna vinnudaginn? Finnur þú fyrir streitu, vöðvabólgu eða öðrum líkamlegum óþægindum?
Langar þig að læra að stilla starfsaðstöðuna þína betur og tileinka þér rétta líkamsbeitingu? -
-
-
Helga Hrönn Óladóttir
Sigraðu streituna (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 58 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaHver er munurinn á streitu, kulnun og sjúklegri streitu? Til að geta áttað sig á sínum eigin tilfinningum og komið í veg fyrir að maður brenni út er gott að kunna skil á þessum atriðum.
-
-
-
Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir
Streita (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 16 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaHvað veldur þér streitu? Þessi spurning er fyrsta skrefið í að taka ábyrgð og ná stjórn á því sem orsakar þína streitu í dag. Við höfum tilhneigingu til að afneita vandamálinu í upphafi og þurfa svo að takast á við afleiðingar vandamálsins þegar allt hefur undið upp á sig og vandamálið er orðið mun stærra og veigameira en það hefði þurft að vera.
-
-
-
Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir
-
Indíana Nanna Jóhannsdóttir
-
Tolli Morthens
-
Dr. Erla Björnsdóttir
-
Andri
Streitustjórnun
Heildarlengd: 76 mínútur.Inni í sprettinum eru nokkur stutt fjölbreytt námskeið sem öll eiga það sameiginlegt að hjálpa þér að vinna gegn stressi.
-
-
-
Andri
Öndunartækni (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 47 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaAð finna jafnvægi líkamlega, andlega og tilfinningalega og nota samsetningu af því sem við vitum að virkar til þess að ná því besta úr hverjum andardrætti.
-
-
-
Andri
Öndunartækni í hnotskurn (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 6 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaÁ námskeiðinu er farið yfir í stuttu máli hvernig við getum náð því markmiði að færa okkur aftur í átt að jafnvægi.
-
-
-
Hugbúnaður og upplýsingatækni (16 námskeið)
-
-
Akademias
ChatGPT 2025
Heildarlengd: 44 mínútur.ChatGPT er önnur tegund gervigreindarhugbúnaðar sem hefur verið þróuð af OpenAI.
-
-
-
Brynjólfur Borgar Jónsson
Gervigreind og snjallar lausnir - Framtíðin er gagnadrifin (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 104 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaÍ námskeiðinu er fjallað um tækni- og viðskiptalegan grunn gagnadrifinna og snjallra lausna. Þjónustufyrirtæki sem við þekkjum, til dæmis Amazon, Spotify og Netflix, nýta þessa tækni til að þjóna viðskiptavinum betur og bæta samkeppnishæfni.
-
-
-
Tryggvi Elínarson
Google Analytics
Heildarlengd: 205 mínútur.Google Anatytics er eitt af vinsælustu vefsíðumælingartólum í heiminum. Þetta er þjónusta frá Google sem gerir þér kleift að mæla árangur vefsíðna, fylgjast með notkunaraðferðum og skoða hvernig notendur hegða sér á vefsíðum.
-
-
-
Atli Stefán Yngvason
Google workspace djúpköfun
Heildarlengd: 62 mínútur.Google Workspace er öflug skrifstofusvíta, full af hugbúnaði til að einfalda og bæta rekstur fyrirtækja. Workspace fæddist á Netinu og býr því öll þar. Workspace hét áður Google Apps og svo G-Suite. Svítan talar vel við aðrar lausnir á Netinu og er hægt að tengja hana við ýmislegt. Um 6 milljónir fyrirtækja og um 120 milljónir nemenda nota Workspace í dag. Workspace býður upp á póst, spjall, fjarfundi, ritvinnslu, glærugerð, gluggareikni, gagnasvæði og ýmislegt fleira sniðugt. En hvernig er best að stilla og nota Workspace?
-
-
-
Margrét Lena Kristensen
Grunnnámskeið í Canva
Heildarlengd: 57 mínútur.Canva er einfalt og marghliða hönnunarforrit sem hentar bæði fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Með notendavænu viðmóti og fjölbreyttum sniðmátum geta notendur skapað faglega hönnun á skömmum tíma.
-
-
-
Sandra Axelsdóttir
Jira fyrir stjórnendur
Heildarlengd: 136 mínútur.Í þessu námskeiði er farið yfir allt það helsta sem gott er að kunna skil á þegar Jira er stillt að þörfum hvers fyrirtækis. Áhersla er á þær stillingar sem eru eins fyrir Jira Server, Data Center eða Cloud, eins og project stillingar (workflows, screens, permissions, notification og fleiri), almennar global stillingar, réttindastillingar og fleira.
-
-
-
Sandra Axelsdóttir
Jira þjónustustjórnun
Heildarlengd: 69 mínútur.Í þessu námskeiði er farið yfir allar Project stillingar fyrir Jira Service Management Projects (JSM). Til að komast í allar þessar stillingar þarf Jira administrator réttindi.
-
-
-
Einar Þór Gústafsson
Lærðu að búa til vefsíðu í Squarespace
Heildarlengd: 152 mínútur.Vilt þú læra að búa til flottan vef með litlum sem engum tilkostnaði? Vilt þú hafa einfalda leið til að uppfæra efni og bæta við upplýsingum á vefnum þínum? Vilt þú sleppa við tæknilegt vesen og bras við vefþjóna og hýsingu? Þá er vefsíðugerð í Squarespace fyrir þig.
-
-
-
Ólöf Erla Einarsdóttir
Lærðu myndvinnslu með Photoshop
Heildarlengd: 330 mínútur.Lærðu að vinna myndir og grafík í einu öflugasta Photoshop námskeiði á Íslandi. Mikill fjöldi þátttakenda hefur farið í gegnum námið og náð góðum tökum á Photoshop. Þekking á Photoshop getur sparað fyrirtækjum háar fjárhæðir á ári í hönnunarkostnað en jafnframt aukið tekjur með meira aðlaðandi markaðsefni.
-
-
-
Hermann Jónsson
MacOS Monterey
Heildarlengd: 39 mínútur.Á þessu námskeiði er skoðuð nýjasta útgáfan af macOS stýrikerfinu: Monterey.
-
-
-
Rúna Loftsdóttir
Microsoft Word (Texti á ensku o.fl. tungumálum í boði)
Heildarlengd: 73 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaMicrosoft Word er eitt mest notaða ritvinnsluforritið í dag og er mikið notað í daglegu starfi, námi og samskiptum. Hvort sem verið er að skrifa skjöl, skýrslur, bréf eða vinna með öðrum, þá býður Word upp á fjölbreytt verkfæri sem auðvelda vinnu og hjálpa til við að setja efni fram á faglegan hátt.
-
-
-
Hermann Jónsson
Skýjageymsla fyrir byrjendur
Heildarlengd: 59 mínútur.Í námskeiðinu er farið yfir hvað skýjageymsla er og helstu kosti þess að nota skýjageymslur.
Skoðaðar eru fjórar vinsælustu skýjageymslurnar og hvernig við getum byrjað að nota þær. -
-
-
Einar Þór Garðarsson
Vefverslun með Shopify - byrjaðu að selja á netinu! (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 186 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaÍ námskeiðinu læra þátttakendur að hanna og setja upp vefverslun með vinsælasta vefverslunarkerfi heims, Shopify. Yfir 500 íslenskar verslanir nota Shopify í dag.
Leiðbeinendur í námskeiðinu koma frá fyrirtækinu KoiKoi og þykja fremstir á Íslandi í uppsetningu vefverslana. -
-
-
Sigurhanna Kristinsdóttir
Verkefnastjórnun með Asana (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 177 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaAsana er eitt vinsælasta verkefnastjórnunarkerfið í heiminum í dag og er sérstaklega vinsælt í hópum sem eru dreifðir - líkt og flestir vinnustaðir eru í dag. Asana hjálpar einstaklingum og hópum að skipuleggja vinnuna sína betur og vera með meiri fókus á markmiðin, verkefnin og þau daglegu störf sem hjálpa fyrirtækjum að vaxa.
-
-
-
Brynjólfur Borgar Jónsson
Vertu klár í gervigreind (Texti á ensku o.fl. tungumálum í boði)
Heildarlengd: 59 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaFyrirlesturinn miðar að því að gera umræðu um gervigreind aðgengilega fyrir venjulegt fólk.
-
-
-
Hermann Jónsson
Öryggisvitund 2024 (Texti á ensku o.fl. tungumálum í boði)
Heildarlengd: 59 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaMikilvægt er að allir hugi að eins góðu öryggi og hægt er þegar unnið er með tölvur og ferðast er um heim netheima.
-
-
-
Vinnuvernd - jafnrétti, sjálfbærni og réttindi (28 námskeið)
-
-
Dr. Eyþór Ívar Jónsson
Að stjórna í óvissu - 10 algengar mýtur (Texti á ensku o.fl. tungumálum í boði)
Heildarlengd: 26 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaNámskeiðið kynnir nýja nálgun fyrir stjórnendur þegar stöðugleiki er ekki í boði og leiðréttir algengar mýtur um hlutverk þeirra
-
-
-
Ellen Margrét Bæhrenz
Árangursrík teymisvinna (uppfærsla) (Texti á ensku o.fl. tungumálum í boði)
Heildarlengd: 73 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaÞrá hvers einstaklings í lífinu er að fá að tilheyra. Tilheyra einhverjum hluta, sama hvar einstaklingurinn er í lífinu hvort heldur er í fjölskylduhópi, vinahópi, samstarfshópi eða hópi sem tengist áhugamálum eða félagsstarfi. Maðurinn er félagsvera og á þessu námskeiði er farið yfir marga þætti á skemmtilegan hátt er tengjast því að vera í liði, teymi.
-
-
-
Akademias
Chat GPT5 (Texti á ensku o.fl. tungumálum í boði)
Heildarlengd: 16 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaÞetta námskeið kynnir ChatGPT 5, nýjustu útgáfu frá OpenAI. ChatGPT 5 býður upp á hraðari og nákvæmari svör, sjálfvirkt val á undirmódelum og fjölmódelhæfni til að vinna með texta, myndir, hljóð og myndbönd samtímis.
-
-
-
Minningarsjóður Dr. Brynju Bragadóttur
-
Landsvirkjun
Einelti á vinnustað (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 9 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaEinelti er alvarlegt vandamál sem hefur ekki einungis slæmar afleiðingar fyrir þolendur heldur einnig á vinnustaðinn í heild sinni. Einelti á aldrei að líðast í menningu vinnustaða og með þessu stutta námskeiði geta allir starfsmenn verið meðvitaðri um einelti og hvernig á að taka á því.
-
-
-
Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir
EKKO: Einelti, áreitni og ofbeldi á vinnustað (Texti á ensku o.fl. tungumálum í boði)
Heildarlengd: 21 mínúta.Textun í boði: íslenska og enskaSálfélagslega vinnuumhverfið skiptir vellíðan starfsmanna mjög miklu máli. Það sem liggur á huga okkar og kemur fram í félagslegum samskiptum hefur mikil áhrif á það hvernig okkur líður í vinnunni.
-
-
-
Eyþór Víðisson
Eld- og brunavarnir (Texti á ensku o.fl. tungumálum í boði)
Heildarlengd: 29 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaHér er sagt frá Eigið eldvarnareftirliti en það felur í sér daglegt og reglubundið eftirlit sem fyrirtæki og stofnanir sinna að eigin frumkvæði og á eigin kostnað.
-
-
-
Eyþór Víðisson
Erfið hegðun (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 10 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaHér er fjallað um þá hegðun sem er á mörkum þess að vera ofbeldi; s.s. dónaskapur eða opinn pirringur og hvernig slík hegðun getur birst starfsfólki.
-
-
-
Miriam Petra Ómarsdóttir Awad
Fordómar á vinnustaðnum (Texti á ensku o.fl. tungumálum í boði)
Heildarlengd: 34 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaNámskeiðið er hugsað sem hugvekja um fordóma í íslensku samfélagi, námskeið sem gagnast öllum sem vinna með fjölbreyttum hópi fólks eða með fjölbreyttan hóp viðskiptavina.
-
-
-
Sverrir Norland
Hinn fullkomni karlmaður (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 60 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaHinn fullkomni karlmaður, er stórskemmtilegur og hugvíkkandi fyrirlestur sem fjallar um karlmennsku í samtímanum á víðan og fjölbreyttan hátt – og einblínir á „jákvæða karlmennsku“. Hvernig eigum við að hugsa um karlmennskuna, bæta hana og efla – og vera með karlmönnum í liði? Hvernig líta fyrirmyndir ungra karlmanna út í dag, ef þær eru þá til?
-
-
-
Ellen Margrét Bæhrenz
Hvernig flokkum við úrgang
Heildarlengd: 14 mínútur.Ný lög í úrgangsmálum tóku gildi 1. jan 2023 kölluð Hringrásarlögin.
-
-
-
Kathryn Gunnarsson
Inclusion and diversity (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 44 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaThis workshop delves into the vital significance of cultivating diversity and fostering an environment where everyone feels valued and empowered.
-
-
-
Dr. Eyþór Ívar Jónsson
Inngangur að fjármálalæsi (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 52 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaFjármálalæsi skiptir sköpum í leik og starfi hjá flestu fólki. Í rannsóknum hefur komið í ljós að fjármálalæsi Íslendinga er af skornum skammti og áhyggjuefni er að fólk sem vinnur lykilstörf í fyrirtækjum hefur ekki fullnægjandi fjármálalæsi til að taka ákvarðanir og leiða verkefni með fjármálaviðmið að leiðarljósi.
-
-
-
Árný Daníelsdóttir
-
Sigríður Örlygsdóttir
Jafnlaunavottun, námskeið fyrir starfsfólk (Texti á ensku o.fl. tungumálum í boði)
Heildarlengd: 7 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaSamkvæmt lögum eiga öll fyrirtæki og stofnanir með 25 starfsmenn eða fleiri að jafnaði á ársgrundvelli að öðlast jafnlaunavottun eða jafnlaunastaðfestingu.
-
-
-
Jóney Hrönn Gylfadóttir
Lífeyrisréttindi á mannamáli (Texti á ensku o.fl. tungumálum í boði)
Heildarlengd: 23 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaLífeyrismálin virka oft flókin og of oft bíðum við fram á síðustu stundu með að kynna okkur réttindi okkar hjá lífeyrissjóðunum.
-
-
-
Ellen Margrét Bæhrenz
Matvælaöryggi (Texti á ensku o.fl. tungumálum í boði)
Heildarlengd: 24 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaNámskeiðið fjallar um meðhöndlun matvæla í iðnaðareldhúsi, matvælalöggjöfina þar sem ábyrgðin er hjá fyrirtækjunum sjálfum og á sama tíma er áhersla lögð á að öryggi sé tryggt í allri matvælakeðjunni, allt frá slátrun og þar til matarins er neytt.
-
-
-
Eyþór Víðisson
-
Berta Andrea Snædal
Ofbeldi gegn starfsfólki (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 19 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaFjallað er um ofbeldi á vinnustöðum á Íslandi, eðli þess og mögulegar birtingarmyndir, þær ráðstafanir sem stjórnendur og starfsfólk geta gripið til þegar vinnustaðurinn er útsettur fyrir ógnandi hegðun og/eða ofbeldi af hálfu annarra.
-
-
-
Lára Herborg Ólafsdóttir
Persónuvernd GDPR fyrir starfsfólk (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 67 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaGDPR stendur fyrir General Data Protection Regulation – almenna persónuverndarreglugerð. Stjórnendur og starfsmenn þurfa að vera meðvitaðir um hvernig reglur varðandi persónuvernd hafa áhrif á starfsumhverfi þeirra og að hverju þarf að huga sérstaklega í því sambandi.
-
-
-
Lára Herborg Ólafsdóttir
Persónuvernd GDPR fyrir stjórnendur (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 88 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaGDPR stendur fyrir General Data Protection Regulation – almenna persónuverndarreglugerð. Stjórnendur og starfsmenn þurfa að vera meðvitaðir um hvernig reglur varðandi persónuvernd hafa áhrif á starfsumhverfi þeirra og að hverju þarf að huga sérstaklega í því sambandi.
-
-
-
Gunnar S. Magnússon
Sjálfbærni (Texti á ensku o.fl. tungumálum í boði)
Heildarlengd: 29 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaInngangur í helstu hugtök sjálfbærninnar og hvernig fyrirtæki og stofnanir geta innleitt ábyrga sjálfbærnistefnu og markmið og gert grein fyrir starfi og árangri með skýrslugjöf.
-
-
-
Aðalbjörg Egilsdóttir
Sjálfbærni í víðu samhengi (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 21 mínúta.Textun í boði: íslenska og enskaÁ þessu námskeiði fjöllum við um sjálfbærni, hvað hugtakið þýðir, hvernig við getum unnið að sjálfbærni í okkar daglega lífi, samfélögunum sem við tökum þátt í, innan fyrirtækja og annarra vinnustaða.
-
-
-
Snorri Engilbertsson
Skyndihjálp (Texti á ensku o.fl. tungumálum í boði)
Heildarlengd: 66 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaSkyndihjálp getur skipt sköpum þegar á reynir.
Lærðu skyndihjálp til að geta aðstoðað og jafnvel bjargað einstaklingi í neyð. Oft er einhver nákominn þér sem þarf á tafarlausri hjálp að halda vegna slyss eða skyndilegra veikinda. -
-
-
Akademias
Snyrtileg vinnuaðstaða (Texti á ensku o.fl. tungumálum í boði)
Heildarlengd: 4 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaÍ þessu stutta og hagnýta námskeiði lærir þú hvernig snyrtilegt vinnusvæði eykur fagmennsku, öryggi og einbeitingu – og verndar viðkvæm gögn
-
-
-
Dr. Eyþór Ívar Jónsson
Tímastjórnun (Texti á ensku o.fl. tungumálum í boði)
Heildarlengd: 45 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaNámskeiðið fjallar um helstu aðferðir til að skipuleggja tímann á skilvirkan hátt þannig að stjórnendur og starfsmenn geti bæði hámarkað afköst og skapað gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
-
-
-
TrackWell
-
Berta Andrea Snædal
Tímon
Heildarlengd: 21 mínúta.Með Tímon tímaskráningarkerfi er haldið utan um skráningar og fjarveru starfsfólks.
-
-
-
Advania
-
Berta Andrea Snædal
Vinnustund (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 39 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaVinnuStund er leiðandi vaktaáætlana – og viðverukerfi fyrir stærri vinnustaði. VinnuStund er sérlega gagnleg þeim sem eru með flókin vaktakerfi, víðfeðma kjarasamninga og breytilegt umhverni. VinnuStund getur tengst öllum helstu launakerfum.
-
-
-
Akademias
Vörn gegn veggjalús (bedbugs) (Texti á ensku o.fl. tungumálum í boði)
Heildarlengd: 12 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaÞetta stutta námskeið fjallar um veggjalýs eða bedbugs og hvernig þær geta borist á gististaði. Þú lærir að þekkja lýsnar, fylgjast með þeim og grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir útbreiðslu. Námskeiðið gefur leiðbeiningar um eftirlit, hreingerningu, meðhöndlun á fötum og húsgögnum og loks leiðbeiningar um samskipti við gesti ef veggjalús finnst.
-
-
-
Eyþór Víðisson
Þjófnaður - forvarnir og viðbrögð (Texti á ensku í boði)
Heildarlengd: 18 mínútur.Textun í boði: íslenska og enskaHér er fjallað um eðli og umfang þjófnaða í verslunum og hvernig hægt er að draga úr slíkum verknaði.
-
-
-
Guðný Stella Guðnadóttir
-
Sólveig Hrönn Gunnarsdóttir
Öldrunarfræðsla
Heildarlengd: 25 mínútur.Hér hefur verið tekin saman öldrunarfræðsla sem nýtist starfsfólki í aðhlynningu og öllum þeim sem vilja kynna sér málefnið.
-
-
-
Ýmislegt (1 námskeið)
-
-
Lína Guðlaug Atladóttir
Allt um Kína - RÓT
Heildarlengd: 44 mínútur.Allt sem þú þarft að vita um Kína og meira til – RÓT gefur heildstæða mynd af nútímavæðingu Kína, fyrirferð og áhrif Kína á alþjóðavettvangi og mikilvægi sögunnar í samskiptum ráðamanna við Vesturlönd og aðrar þjóðir.
-
-