Þjónusta, sala og markaðssetning
Almannatengsl, samskipti við fjölmiðla og krísustjórnun
Á námskeiðinu lærir þú grunnatriði almannatengsla og hvernig þau nýtast fyrirtækjum í samskiptum við sína markhópa.
Á námskeiðinu lærir þú grunnatriði almannatengsla og hvernig þau nýtast fyrirtækjum í samskiptum við sína markhópa.
Þátttakendur öðlast hagnýta þekkingu á helstu verkfærum almannatengsla, samskiptum við fjölmiðla, ásamt lykilatriðum í krísustjórnun. Fjölmörg dæmi eru tekin til að dýpka skilning á viðfangsefninu.
Námskeiðið er kennt í fjarnámi. Það er tæplega þriggja klukkustunda langt og samanstendur af sjö fyrirlestrum.
Á námskeiðinu er m.a. fjallað um:
Hvað almannatengsl eru og hvernig hægt er að nýta þau
Hvaða atriði við þurfum að hafa í huga í samskiptum við fjölmiðla
Hvernig við hámörkum líkur á fjölmiðlaumfjöllun
Helstu þætti fjölmiðlasamskipta
Hlutverk samfélagsmiðla í almannatengslum
Helstu atriði í krísustjórnun
Hvernig fyrirtæki og stofnanir geta lágmarkað hugsanlegan skaða af krísum
Heildarlengd: 155 mín.
Grétar Sveinn Theodórsson, almannatengill hjá Innsýn samskiptum. Hann hefur rúmlega tólf ára reynslu sem ráðgjafi í almannatengslum og hefur unnið fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum, íslensk sem erlend. Grétar kennir einnig almannatengsl við Háskóla Íslands.