Leiðtogar, samskipti og teymi
Frá hugmynd til framkvæmdar
Frá hugmynd til framkvæmdar - er námskeið/fyrirlestur sem var fluttur fyrir Ungar Athafnakonur. Farið er yfir hvernig við fáum hugmyndir.
Frá hugmynd til framkvæmdar - er námskeið/fyrirlestur sem var fluttur fyrir Ungar Athafnakonur. Farið er yfir hvernig við fáum hugmyndir. Hvað það þýðir að vera frumkvöðull, hvernig fólk fær hugmyndir og afhverju. Hvernig getur þú búið til verðmæti úr hugmyndum sem koma til þín og hver eru þín fyrstu skref í slíkri þróun.
Markmið námskeiðsins er að
Skoða hugtakið nýsköpun, hvað þýðir það og af hverju er það mikilvægt
Skoða hvaðan hugmyndir koma, hvernig fólk fær hugmyndir og hvernig er hægt að búa til verðmæti úr þeim
Fara yfir hvað það þýðir að vera frumkvöðull, hlutverk þeirra og sýn
Skoða mikilvægi þess að prófa allar hugmyndir og kanna í framhaldinu möguleika til sölu, markaðssetningu og þjónustu, byggðar á vörunni
Fara yfir hvernig hægt er að fjármagna hugmyndaferlið í vöruþróuninni og skoðuð hvernig þessi hringrás hugmynda og frumkvöðla er
Heildarlengd: 45 mínútur.
TILBOÐ í takmarkaðan tíma.
Árs áskrift af um 160 MasterClass námskeiðum Akademias. Verð: 99.000 kr. Sjá nánar hér.
Ingi Björn Sigurðsson hefur síðustu 15 árin verið í nýsköpun. Hann hefur komið að stofnun tuga sprotafyrirtækja, hann hefur verið mentor fyrir hundruði frumkvöðla, unnið sem fjárfestir, stýrt hröðulum og unnið sem viðskiptaráðgjafi.