Lýsing námskeiðs og skráning

Verkefnastjórnun með Asana

Asana er eitt vinsælasta verkefnastjórnunarkerfið í heiminum í dag og er sérstaklega vinsælt í hópum sem eru dreifðir - líkt og flestir vinnustaðir eru í dag. Asana hjálpar einstaklingum og hópum að skipuleggja vinnuna sína betur og vera með meiri fókus á markmiðin, verkefnin og þau daglegu störf sem hjálpa fyrirtækjum að vaxa.

Asana hentar fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum, hópum og þvert á hópa og einnig einstaklingum.
Íslensk fyrirtæki sem nota Asana eru meðal annars; Nova, Icelandair og Kolibri, en erlendis; Uber, Harvard University, GE, Deloitte, Zappos, Google, AirBnB, IDEO, PayPal og Facebook.

Um hvað er námskeiðið?
Í námskeiðinu er farið yfir grunnþætti Asana og hvernig það er byggt upp, með áherslu á að nota Asana sem samskiptatól svo hægt sé að fækka fundum. Í lok námskeiðs eiga þátttakendur að hafa öðlast þekkingu og færni til að byrja strax að nota kerfið. Fleiri og fleiri fyrirtæki eru farin að nota Asana í sínum daglega rekstri, fyrst og fremst vegna þess hversu sveigjanlegt og notendavænt kerfið er.

Fyrir hverja?
Fyrir starfsmenn minni og stærri fyrirtækja og aðra einstaklinga, sem vilja kynnast og læra að nota Asana verkefnastjórnunarkerfið.

Námskaflar og tími:

  • Inngangur - 14 mínútur.
  • Uppsetning Asana 1 - 17 mínútur.
  • Uppsetning Asana 2 - 18 mínútur.
  • Uppsetning Asana 3 - 5 mínútur.
  • Uppsetning deilda eða teymis (teams) - 15 mínútur.
  • Uppsetning nýs verkefnis (project) - 39 mínútur.
  • Einföld uppsetning verkefnis og verks (task) - 32 mínútur.
  • Meira um verk (task) - 14 mínútur.
  • Skýrslur, uppfærslur og ítarefni - 7 mínútur.
  • Samantekt og yfirferð - 16 mínútur.

Heildarlengd: 177 mínútur.

Textun í boði:
Enska og íslenska.

Verð:
24.000 kr.

Hagnýtar upplýsingar

  • Fjarnám á netinu, byrjaðu að læra núna!
  • Lærðu á þínum hraða, eins oft og hvar og hvenær sem er yfir 12 mánaða tímabil.
  • Námskeiðið er í boði á sérkjörum fyrir vinnustaði - sjá nánar.
  • Mörg stéttarfélög veita styrk fyrir allt að 100% af verði námskeiðs.
  • Vinnustaðir geta sótt um styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð inni á www.attin.is – óháð starfsmanni.
  • Vinnumálastofnun veitir möguleika á styrk fyrir skjólstæðinga sína fyrir allt að 75% af verði námskeiðs.

 

Leiðbeinandi

Sigurhanna Kristinsdóttir

Sigurhanna Kristinsdóttir er Delivery Lead hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Gangverki.
Hún hefur starfað við verkefnastýringu síðastliðin 15 ár – og síðustu 10 ár í hugbúnaðarverkefnum hjá Gangverki, Icelandair, Kolibri, Nova og Hugsmiðjunni.
Sigurhanna hefur mikla reynslu af Asana, bæði í störfum sínum og í sínu persónulega lífi.

Hoobla - Systir Akademias