Póstlistar með Mailchimp

Útgáfudagur: 26/09/22
Síðast uppfært: 20/09/24

Hámarkaðu árangur tölvupósta til viðskiptavina. Póstlistar eru meðal öflugustu markaðstóla fyrirtækja, en ekki alltaf nýttir til fulls.
Póstlistar geta haft áhrif á rekstur. Með réttum leiðum er hægt að auka sölu, svo sem með því að tilkynna nýjar vörur eða þjónustu og einnig styrkja ásýnd með fallegum póstum sem nýta vörumerkið vel og fyrirbyggja óþörf símtöl inn til fyrirtækisins.

Markmið námskeiðsins er m.a. að nemandi
  • fái góða innsýn í bestu leiðirnar þegar kemur að vali á kerfum og helstu stillingum

  • skilji að tölvupóstur er sem einn miðill og hvernig fyrsta uppsetning er valin, hvernig tölvupóstur er hannaður og farið yfir sendingar

  • þekki mikilvægi textaskrifa fyrir póstlista ásamt því hvernig eftirfylgni og greiningar geta stutt við meiri árangur og geti sett upp herferð með einföldum hætti

 
Fyrir hverja:
Námskeiðið hentar sérstaklega vel fyrir markaðsstjóra, viðskiptastjóra, vörumerkjastjóra, og aðra stjórnendur og ásamt starfsmönnum sem koma að umsjón markaðsmála og tölvupóstsendinga fyrirtækja.

Verð: 24.000 kr.

Hagnýtar upplýsingar

TILBOÐ í takmarkaðan tíma.

Árs áskrift af um 160 MasterClass námskeiðum Akademias. Verð: 99.000 kr. Sjá nánar hér.

  • Fjarnám á netinu, byrjaðu að læra núna!
  • Lærðu á þínum hraða, eins oft og hvar og hvenær sem er yfir 12 mánaða tímabil.
  • Hægt að læra í gegnum vefsíðu Akademias en einnig með Akademias appinu (fyrir Android og iPhone)
  • Námskeiðið er í boði á sérkjörum fyrir vinnustaði - sjá nánar.
  • Mörg stéttarfélög veita styrk fyrir allt að 100% af verði námskeiðs.
  • Vinnustaðir geta sótt um styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð inni á www.attin.is – óháð starfsmanni.
  • Vinnumálastofnun veitir möguleika á styrk fyrir skjólstæðinga sína fyrir allt að 75% af verði námskeiðs.