Lýsing námskeiðs og skráning

Fiskur! Jákvæð vinnustaðamenning

Námskeiðið er byggt á hugmyndafræði bókarinnar Fiskur! eða Fish! sem notið hefur gríðarlegra vinsælda úti um allan heim. Hér tekst höfundi afar vel að draga fram það besta í henni.
Markmið námskeiðsins er að

  • Kynna sér sögu fisksalanna í Seattle og hvernig þeirra hugmyndafræði hefur haft jákvæð áhrif á vinnustaði og menningu til hins betra, hvað þeir gerðu til þess að líða betur í vinnunni og hvernig hægt var að auka afköstin til muna
  • Sjá samhengið á milli þess ef vinnustaðurinn er fullur af lífi, gleði, orku, virðingu og samhug þá verður lífið miklu betra, viðskiptavinurinn/samstarfsmenn fá miklu betri samskipti og upplifun
  • Kynna sér reglurnar fjórar sem gera allt betra á vinnustaðnum og ýtir undir jákvæða vinnustaðamenningu
  • Sjá mikilvægi þess hvernig skemmtun, sköpunargleði og traust tengjast á góðum vinnustað
Fyrir hverja?
Höfðar til allra þeirra sem vilja kveikja neista að vinnugleði og ánægju á vinnustað, bæta starfsárangur og samskipti. Boðskapur Fisksins! Höfðar til allra starfs- og iðngreina sem og almenning almennt sem vilja gleði jafnt í vinnu sem og einkalífi.
 

Námskaflar og tími:

  • Fiskifræðin, fyrsti hluti - 9 mínútur.
  • Fiskifræðin, annar hluti - 9 mínútur.
  • Fiskifræðin, þriðji hluti - 7 mínútur.

Heildarlengd: 25 mínútur.

Textun í boði:
Enska og íslenska.

Verð:
24.000 kr.

Hagnýtar upplýsingar

  • Fjarnám á netinu, byrjaðu að læra núna!
  • Lærðu á þínum hraða, eins oft og hvar og hvenær sem er yfir 12 mánaða tímabil.
  • Námskeiðið er í boði á sérkjörum fyrir vinnustaði - sjá nánar.
  • Mörg stéttarfélög veita styrk fyrir allt að 100% af verði námskeiðs.
  • Vinnustaðir geta sótt um styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð inni á www.attin.is – óháð starfsmanni.
  • Vinnumálastofnun veitir möguleika á styrk fyrir skjólstæðinga sína fyrir allt að 75% af verði námskeiðs.

 

Leiðbeinendur

Berta Andrea Snædal

Guðmundur Arnar Guðmundsson

Guðmundur Arnar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Akademias, er hagfræðingur frá Acadia University í Kanada og með MBA frá Háskóla Íslands, auk þess að hafa sótt stjórnendanám, þar á meðal við Harvard Business School og IESE.
Guðmundur hefur starfað sem markaðsstjóri Íslandsbanka, Nova og WOW air og sat jafnframt í framkvæmdastjórn félaganna. Hann var markaðsstjóri Icelandair í Bretlandi og vörumerkjastjóri Icelandair á Íslandi og einnig markaðsráðgjafi fyrir fjölda fyrirtækja, af öllum stærðum og í mörgum ólíkum atvinnugeirum.
Tvö þeirra fyrirtækja sem hann stýrði markaðsmálum fyrir voru valin Markaðsfyrirtæki ársins samkvæmt ÍMARK; Icelandair 2011 og Nova 2014.
Guðmundur hefur kennt markaðsfræði og vörumerkjastjórnun við Háskólann í Reykjavík og einnig verið reglulegur gestafyrirlesari í öllum háskólum landsins.
Hann hefur verið mentor í Startup Reykjavík og Startup Tourism og dómari í Gullegginu.

Hoobla - Systir Akademias