Lýsing námskeiðs og skráning

Microsoft Forms 2024

Námskeiðið er ný útgáfa af Microsoft Forms, 2024 sem er hluti af Office 365 og bíður upp á að búa til kannanir, próf eða önnur form. Við kynnumst viðmótinu aðeins, lærum að búa til form, deila þeim og skoða niðurstöður. Einnig er farið yfir helstu stillingar, hvernig hægt er að nota form í Teams og einnig góð ráð.
 
Fyrir hverja?
Námskeiðið er fyrir alla þá sem vilja læra grunnatriðin í Microsoft Forms. 
 

Námskaflar og tími:

  • Inngangur - 1 mínúta.
  • Viðmótið - 2 mínútur.
  • Búa til könnun - 6 mínútur.
  • Deila könnun - 3 mínútur.
  • Aðrar stillingar - 4 mínútur.
  • Próf - 4 mínútur.
  • Útkoma úr prófi - 4 mínútur.
  • Flytja inn skjal - 3 mínútur.
  • Forms í Teams - 2 mínútur.
  • Nokkur ráð í lokin - 3 mínútur.
  • Samantekt - 1 mínúta.

Heildarlengd: 33 mínútur.

Verð:
24.000 kr.

Hagnýtar upplýsingar

  • Fjarnám á netinu, byrjaðu að læra núna!
  • Lærðu á þínum hraða, eins oft og hvar og hvenær sem er yfir 12 mánaða tímabil.
  • Námskeiðið er í boði á sérkjörum fyrir vinnustaði - sjá nánar.
  • Mörg stéttarfélög veita styrk fyrir allt að 100% af verði námskeiðs.
  • Vinnustaðir geta sótt um styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð inni á www.attin.is – óháð starfsmanni.
  • Vinnumálastofnun veitir möguleika á styrk fyrir skjólstæðinga sína fyrir allt að 75% af verði námskeiðs.

 

Leiðbeinandi

Hermann Jónsson

Hermann Jónsson, kennslustjóri tæknináms Akademias, hefur starfað í tölvubransanum í fjölda ára, meðal annars sem framkvæmdastjóri hjá tölvuskólanum iSoft, tölvuskólanum NTV og sem fræðslustjóri Advania.
Hermann hefur margra ára reynslu sem kennari í upplýsingatæknigeiranum.

Hoobla - Systir Akademias