Innleiðing jafnlaunakerfa og jafnlaunavottun
Útgáfudagur: 10/10/22
Síðast uppfært: 14/07/25
Markmið námskeiðsins er m.a. að nemandi
fái góða innsýn yfir þau helstu atriði sem þurfa að vera til staðar til að fyrirtæki geti öðlast jafnlaunavottun
öðlist þekkingu á umgjörð við innleiðingu á jafnlaunakerfi, kynnist helstu hugtökum og kröfum ÍST 85 jafnlaunastaðalsins
kynnist þeim ávinningi sem hlýst af því að innleiða virkt jafnlaunakerfi
þekki hvernig sett er upp jafnlaunastefna og jafnréttisáætlun
þekki aðferðir við starfaflokkun, hvað telur til launa og hvað þarf að passa þegar gerð er launagreining
Fyrir hverja?
Námskeiðið hentar öllum sem koma að því að setja upp, innleiða og viðhalda jafnlaunakerfi í fyrirtækjum og stofnunum og þeim sem eru að taka við uppsettum kerfum.