Sálræn fyrsta hjálp
Útgáfudagur: 17/02/26
Síðast uppfært: 19/02/26
Viltu öðlast innsýn í sálræna fyrstu hjálp og kynnast leiðum til að vera til staðar fyrir aðra á erfiðum tímum?
Á námskeiðinu eru lykilhugtök sálrænnar fyrstu hjálpar kynnt og leiðir til að styðja við fólk í uppnámi og þannig aðstoða það við að ná ró og stjórn á aðstæðum. Sú færni getur hjálpað til við að vera til staðar og bregðast við þegar fólk þarf á stuðningi að halda.
Markmið námskeiðsins eru að þátttakendur öðlist:
· þekkingu á sálrænni fyrstu hjálp og viti hvað það er og hvað ekki
· frekari þekkingu á viðbrögðum fólks í vanlíðan
· skilning á þremur lykilþáttum „Horfa, Hlusta og Tengja“
· færni í að veita sálræna fyrstu hjálp
· skilning á flóknum aðstæðum og viðbrögðum
· veri meðvitað um mikilvægi þess að huga einnig að sjálfum sér þegar aðstoða þarf aðra
Fyrir hverja
Námskeiðið er fyrir öll þar sem sálræn fyrsta hjálp kemur öllum við.