Fræðsluþættir

Rafræn námskeið

Í Vinnustaðaskóla Akademias eru yfir 200 rafræn námskeið á Íslensku, talsett og textuð á 29 tungumálum.

Copilot í samskiptum - Teams og Outlook

Útgáfudagur: 01/06/26
Síðast uppfært: 03/06/26

Lærðu hvernig Microsoft Copilot getur einfaldað samskipti, fundi og daglegt skipulag í Teams og Outlook. Á þessu rafræna námskeiði færðu hagnýta leiðsögn í hvernig nýta má gervigreind til að spara tíma og vinna skilvirkar.

Námskeiðið sýnir meðal annars hvernig Copilot getur:

tekið saman fundi og búið til fundarsamantektir í Teams,  

hjálpað við að undirbúa fundi,  

skrifað, stytt og betrumbætt tölvupósta í Outlook,  

forgangsraðað upplýsingum og auðveldað utanumhald verkefna og samskipta.  

Með skýrum dæmum og einföldum leiðbeiningum lærir þú hvernig Copilot getur stutt við dagleg samskipti og aukið framleiðni í Microsoft 365 umhverfinu.

Námskeiðið hentar öllum sem vilja nýta Teams og Outlook betur og kynnast hvernig gervigreind getur stutt við skilvirkari vinnubrögð.