Fræðsluþættir

Rafræn námskeið

Í Vinnustaðaskóla Akademias eru yfir 200 rafræn námskeið á Íslensku, talsett og textuð á 29 tungumálum.

Gervigreindarlæsi

Útgáfudagur: 22/10/26
Síðast uppfært: 22/10/26

Á þessu stutta námskeiði lærir þú að nýta gervigreind til að spara tíma og bæta gæði vinnunnar á öruggan og siðferðilegan hátt. Gervigreind getur gefið sannfærandi en röng svör og því er mikilvægt að kunna að leiðbeina henni, þekkja takmarkanir hennar og meta niðurstöðurnar. Þekkingin nýtist óháð því hvaða gervigreindartól þú notar.

Námskeiðið byggir á 4D-rammanum frá Anthropic: verkefnaskiptingu, lýsingu, gagnrýni og ábyrgð. Þú lærir að velja hvaða verkefni henta gervigreind, gefa skýr fyrirmæli, yfirfara svör og gæta að trúnaði og ábyrgri notkun. Þú færð einnig einfaldan gátlista sem hjálpar þér að beita þessu í daglegu starfi.

Kennari: 

Þórarinn Hjálmarsson, forstöðumaður stjórnenda- og tæknifræðslu hjá Akademias