Netöryggi 101
Útgáfudagur: 09/10/22
Síðast uppfært: 27/06/25
Netið er stærsti skemmtistaður í heimi, en það getur verið hættulegur staður fyrir greiðslukortanúmer, lykilorð, vinnukerfi og persónugreinanleg gögn. Á námskeiðinu lærir þú hvernig þú getur tekið öryggið í gegn með nokkrum einföldum ráðum.
Markmið námskeiðsins er m.a. að nemandi
Geri sér grein fyrir hættum veraldarvefjarins, hvað ber að varast og hvaða hættur geta leynst á þessum skemmtilega stað
Endurræsi hugarfar sitt og skoði hvað hægt er að gera til að auka eigið öryggi
Geti tekið öryggið á næsta stig og axlað þannig enn frekari ábyrgð á eigin öryggi
Fyrir hverja?
Áherslan er á minni og meðalstór fyrirtækja en námskeiðið virkar fyrir einstaklinga líka.