Fræðsluþættir

Rafræn námskeið

Í Vinnustaðaskóla Akademias eru yfir 200 rafræn námskeið á Íslensku, talsett og textuð á 29 tungumálum.

Ofurkraftar með gervigreind

Útgáfudagur: 10/08/26
Síðast uppfært: 09/09/26

Gervigreind getur orðið einn öflugasti samstarfsmaðurinn í daglegu starfi – ef við kunnum að nýta hana rétt. Í námskeiðinu Ofurkraftar með gervigreind lærir þú hagnýtar aðferðir til að fá meira út úr gervigreind, vinna hraðar og betur og nýta hana á öruggan og markvissan hátt. 

Námskeiðið er fyrir allt starfsfólk, óháð starfi eða fyrri reynslu af gervigreind. Áherslan er á aðferðir sem hægt er að taka strax í notkun í raunverulegum verkefnum. 

Námskeiðið skiptist í fimm hluta: 

  • Ofurfyrirmæli – Lærðu að skrifa skýr og markviss fyrirmæli sem skila betri svörum. Þú kynnist einföldum aðferðum sem gera samskiptin við gervigreind skilvirkari og spara tíma. 

  • Ofursamhengi – Lærðu að gefa gervigreind réttar upplýsingar um verkefnið, starfið og fyrirtækið. Með betra samhengi verður hún síður almennur ráðgjafi og meira eins og samstarfsmaður sem skilur verkefnið. 

  • Ofurdómgreind – Gervigreind er öflug en ekki óskeikul. Lærðu að meta svör hennar á gagnrýninn hátt, koma auga á veikleika og vita hvenær þú getur treyst niðurstöðunum – og hvenær þú þarft að staldra við. 

  • Ofurflæði – Lærðu að koma gervigreind inn í daglegt vinnuflæði og sjálfvirknivæða endurtekin verkefni. Markmiðið er að minnka handavinnu og skapa meira rými fyrir þau verkefni þar sem þú skapar mest verðmæti. 

  • Ofurteymi – Lærðu hvernig þekking og góðar gervigreindarlausnir geta nýst öllu teyminu. Þú kynnist leiðum til að deila þekkingu, samræma vinnubrögð og byggja upp sameiginlega gervigreindaraðstoðarmenn. 

Að námskeiði loknu hefur þú öðlast hagnýta færni til að gera gervigreind að raunverulegum ofurkrafti – fyrir þig, teymið þitt og vinnustaðinn.