Microsoft PowerPoint

Útgáfudagur: 11/02/26
Síðast uppfært: 17/02/26

Microsoft PowerPoint er mikið notað í námi, starfi og fundarhaldi. Forritið gerir notendum kleift að búa til skýrar, aðlaðandi og faglegar kynningar sem styðja við miðlun upplýsinga og hugmynda. Á þessu námskeiði förum við yfir grunnatriði í Microsoft PowerPoint, kynnum helstu verkfæri forritsins og sýnum hvernig má byggja upp einfaldar og áhrifaríkar kynningar. Námskeiðið hentar öllum, óháð fyrri reynslu.