Microsoft Outlook

Útgáfudagur: 11/02/26
Síðast uppfært: 16/02/26

Microsoft Outlook er eitt mest notaða tölvupóst- og skipulagsforrit í dag og er mikilvægt verkfæri í daglegu starfi margra. Með Outlook er hægt halda utan um tölvupóst, dagatöl, fundi og tengiliði á skilvirkan og skipulagðan hátt. 

Á þessu námskeiði förum við yfir grunnatriði í Microsoft Outlook, kynnum helstu aðgerðir forritsins og sýnum hvernig hægt er vinna markvisst með tölvupóst og tímaskipulag. Námskeiðið hentar öllum, óháð fyrri reynslu.