Fræðsluþættir

Rafræn námskeið

Í Vinnustaðaskóla Akademias eru yfir 200 rafræn námskeið á Íslensku, talsett og textuð á 29 tungumálum.

Rétt líkamsbeiting í umönnunarstörfum

Útgáfudagur: 22/10/26
Síðast uppfært: 22/10/26

Námskeiðið veitir starfsfólki einfaldar og hagnýtar leiðir til að nota líkamann á skynsamlegan hátt, minnka óþarfa álag og styðja við öruggari umönnun.

Markmið námskeiðsins er m.a. að nemandi skilji hvað felst í réttri líkamsbeitingu og orkusparandi vinnuaðferðum geti nýtt G.O.L.F. aðferðina við undirbúning og framkvæmd verkefna þekki grunnreglur um stöðuga fótstöðu, nálægð við verkefnið og kraft frá fótunum geti valið vinnustöðu sem hentar verkefninu og dregið úr óþarfa álagi skilji mikilvægi hjálpartækja, samvinnu og virkrar þátttöku skjólstæðings geti tekið eftir merkjum líkamans og mótað venjur sem styðja við endurheimt og vellíðan

Námskeiðið skiptist í átta stutta kafla. Hægt er að horfa á hvern kafla sérstaklega og rifja efnið upp eftir þörfum. Einfaldar útskýringar og verkleg sýnikennsla tengja fræðsluna beint við dagleg verkefni í umönnun.

 

Kennari

Ásgerður Guðmundsdóttir er sjúkraþjálfari, íþróttakennari og jógakennari og með diplómu í jákvæðri sálfræði. Hún er framkvæmdastjóri Vinnuheilsu og hefur í um 25 ár unnið með fyrirtækjum og stofnunum að vinnuvistfræði, heilsueflingu og heilsuvernd á vinnustöðum. Hún hefur jafnframt haldið námskeið og fyrirlestra sem styðja við betri líðan í vinnu og draga úr stoðkerfisálagi.

 

Fyrir hverja

Námskeiðið hentar starfsfólki sem sinnir umönnun, stuðningi og daglegri aðstoð. Það getur nýst bæði nýju og reynslumiklu starfsfólki á hjúkrunarheimilum, í heimaþjónustu, á heilbrigðisstofnunum og í félagsþjónustu. Efnið nýtist einnig stjórnendum og öðrum sem koma að öryggi, vinnuumhverfi og fræðslu starfsfólks.