Skýrslur

Skýrslur er gott að nýta til að hafa yfirsýn yfir námskeiðin, hverjir taka námskeiðin og hvað er framundan hjá notendum. Það gerum við með því að fara í stjórnborðið og velja skýrslur.

Þar sjáum við námskeiðsskýrslur, notendaskýrslur og hópaskýrslur.

Byrjum að skoða námskeiðsskýrslurnar en þar er hægt að skoða námskeiðshlutfall eftir völdu tímabili.

Námskeiðsskýrslur sýna yfirlit yfir:

Skráningar í námskeið 

Þar sjáum við hvaða námskeið er búið að skrá notendur í, dagsetningu þess er notendur voru skráðir í námskeiðið og hvað margir notendur eru skráðir í viðkomandi námskeið. Efsta námskeiðið er það námskeið sem er með flesta notendur skráða.

Hægt er að smella á Námskeiðsheiti og þá kemur upp yfirlit með eftirfarandi upplýsingum um notendur:

Fullt nafn

Deild

Starfsheiti

Skráningardagur 

Framvinda

Dagsetning lokið 

Hægt er að sía upplýsingarnar eftir deild, starfsheiti og framvindu og velja eftir tímabili.

Einnig er hægt að taka út skýrsluna í Excel.

Námskeið lokahlutfall 

Þar sjáum við þau námskeið sem notendur eru byrjaðir á og kemur þar fram nafn námskeiðs og heildarlokahlutfall allra skráðra notenda. Efsta námskeiðið er það námskeið sem er með hæsta lokahlutfallið.

Hægt er að smella á Námskeiðsheiti og þá kemur upp yfirlit með eftirfarandi upplýsingum um notendur:

Fullt nafn

Deild

Starfsheiti

Skráningardagur 

Framvinda

Dagsetning lokið 

Hægt er að sía upplýsingarnar eftir deild, starfsheiti og framvindu og velja eftir tímabili.

Einnig er hægt að taka út skýrsluna í Excel.

Klukkutímar í nám 

Þar kemur fram hvaða námskeið notendur eru búnir að eyða mestum tíma í og heildartíma sem notendur hafa eytt í námskeið í kerfinu.

CO2 sparað

Hér er tekið saman kolefnissporið sem notendur hafa sparað við að taka námskeið í gegnum netið.

Notendaskýrslur 

Notendaskýrslur sýna hvað mörg námskeið notendur eru skráðir í eða hafa byrjað á og eru þar eftirfarandi upplýsingar:

Fullt nafn

Deild 

Starfsheiti 

Námskeið

Hægt er að sía þær upplýsingar sem koma með því að ýta á sía og velja þau skilyrði sem eiga að koma fram, en hægt er að sía út frá:

Námskeið

Deild 

Yfirmaður

Starfsheiti

Framvinda

Námskeiðslokahlutfall

Með því að ýta á nafn á notanda koma fram ítarlegri upplýsingar um þau námskeið sem eru á notandanum:

Klukkutímar í nám

Námskeiðslokahlutfall

Ekki byrjað 

Í vinnslu

Lokið

Einnig er hægt að taka út skýrsluna í Excel.

Hópaskýrslur

Hópaskýrslur sýna yfirlit yfir þá skólahópa sem eru í kerfinu, fjölda notenda, klukkutíma sem allir hópar hafa eytt í nám og heildarnámskeiðslokahlufall.

Hópaskýrslur sýna einnig notkun niður á hópa og koma fram eftirfarandi upplýsingar:

Nafn hóps 

Fjöldi notenda 

Lokunarhlutfall %

Skor

Námstími

Hægt er að skoða hvern hóp fyrir sig með því að ýta á nánar og koma þar eftirfarandi upplýsingar:

Fjöldi notenda í eftirfarandi hóp, hvað hópurinn hefur eytt mörgum tímum í nám og námskeiðslokahlutfall hóps.

Nafn 

Seinasta innskráning 

Námskeið

Lokunarhlutfall

Skor

Námstími

Einnig er hægt að taka út skýrsluna í Excel.


Hafa ber í huga að skýrslunar sameina sem stendur bæði ensku og íslensku útgáfuna af námskeiðunum. Er því ekki hægt að greina á milli notenda sem hafa lokið námskeiðinu á íslensku og þeirra sem hafa lokið því á ensku!