Búa til viðburð (Events)
Til þess að setja inn viðburð er farið í Bakendann og þar er valið „Events“ og „Add new event“.
Hægt er að bæta við staðsetningu með því að skrifa staðsetninguna inn í „Venue“ gluggann og ýta á enter.
Hérna er fyllt inn í alla dálkana.
Ef skrá á þátttöku á viðburðinn er farið aðeins neðar á síðuna og valið „new RSVP“
Þar er sett inn heiti skráningar eins og t.d. „Ég mæti“ og svo sett dagsetning skráningartímabils. Hægt er að bæta „Cant go“ í skráninguna ef telja á alla starfsmenn.
Viðburðurinn sést svo á fréttaveitunni undir viðburðir framundan.
Þegar viðburðurinn er valinn geta starfsmenn séð allt sem viðkemur viðburðinum, skráð sig á hann ásamt því að geta skráð hann í dagatalið hjá sér.