Námskeið tekið í hóp/sal

Ef taka á námskeið í Hóp/sal eru tvær leiðir til þess að skrá framvindu nemenda.

Leið 1. Skrá þátttöku handvirkt

Hér þarf að byrja á að skrá alla þátttakendur í námskeiðið og svo er farið í „Bakendann“ valið „Notendur“ og undir nafni hvers og eins notanda er ýtt á „Breyta“.

Þá er farið neðst á síðuna þar sem „námskeiðs info“ er, þar er ýtt á „details“ bakvið umrætt námskeið og valið „námskeið All Complete“ þá hakast í alla kafla námskeiðs og svo er ýtt á „uppfæra notandastillingar“ og þá er námskeiði lokið hjá viðkomandi. Gera þarf þetta við alla þá notendur sem horfðu saman á námskeiðið.

Leið 2.  Þátttakendur skrá inn númer til að ljúka námskeiði.


Hér þarf að byrja á að fara yfir í „stjórnborð“.


Þar er valið „námskeið“og svo „+ Nýtt námskeið“.

Setja þarf inn „Heiti námskeiðs“ ekki er neinu breytt fyrr en komið er í skref 5 og þar er hakað í „Opið námskeið“ svo er ýtt á „Búa til námskeið".

Næst er að velja „Nýr kafli“ og svo setja nafn á kafla það sama og heiti námskeiðs og svo ýtt á „Birt“. Kaflinn á ekki að innihalda efni.

Svo er valið „Nýtt Próf“ sett inn heiti á prófinu sem er það sama og námskeiðsheiti og valið „Add“.

Þá opnast nýr flipi og er valið „Nýtt spurning“.

Byrja þarf að fylla inn í „Spurning“ setja þarf inn heiti spurningar bæði í „Spurning title“ og „Spurning“ og valið er „Free Choice“ í spurning type. Valið er svo „Answer“ og þar er sett inn það svar sem þið viljið nota og ýtt á „Vista“.

Svo er farið yfir í fyrri flipa og þá ætti að vera komið efni í „Námsefni“ og „Lokapróf“ og þá er ýtt á „Birt“ og svo „Skoða Námskeið".

Núna á námskeiðið að vera komið undir önnur námskeið og þarf því nemandinn bara að finna námskeiðið byrja það og skrá inn rétt svar við spurningunni,  ýta á „Click here to continue“ og þá fær hann námskeið lokið. Ef nemandi skrifar ekki rétt svar við spurningunni fær hann ekki námskeið lokið heldur þarf hann að taka prófið aftur.