Skrá námskeið á notendur
Hægt er að skrá námskeið á notendur í framenda og bakenda.
Þegar skráð er námskeið á notanda í framenda er byrjað á að fara í „stjórnborð“.
Svo er valið „Námskeið“ og því næst leitað að því námskeiði sem skrá á á notandann.
Því næst er farið inn í námskeiðið og valið „Notendur“ þar er hægt að ýta á tvöföldu örina (>>) og þá er námskeiðið sett á alla notendur, einnig er hægt að haka við þá notendur sem eiga að taka námskeiðið og svo er ýtt á einföldu örina (>) og þá færast bara þeir notendur yfir sem hakað var við. Svo er ýtt á „vista“ og þá fá notendur tilkynningu um að eftirfarandi námskeið hafi verið skráð á þá og birtist námskeiðið einnig undir „Mín námskeið“ hjá þeim.
Þegar skráð er námskeið á notanda í bakenda er byrjað á að fara í „Bakendi“ og í „notendur > Allir notendur“
- Smelltu á námskeiðið vinstra megin sem þú vilt skrá notandann í
- Smelltu á efri örina → til að færa námskeiðið í „Enrolled í námskeið“
- Smelltu á „Uppfæra notanda“ hnappinn neðst á síðunni
Fjarlægja notanda úr námskeiði:
- Smelltu á námskeiðið hægra megin sem þeir eru þegar skráðir í
- Smelltu á neðri örina ← til að fjarlægja námskeiðið úr „Enrolled námskeið“
- Smelltu á „uppfæra notanda“ hnappinn neðst á síðunni