Eyða kerfisstjóra/hópstjóra úr kerfinu
Mikilvægt er að eyða ekki notendum í framendanum sem hafa búið til efni inni í kerfinu þar sem eingöngu er hægt að færa efni á milli notenda í bakendanum!!
Ef notandi, sem er kerfisstjóri/hópstjóri er eytt út úr kerfinu og hann hefur búið til námsefni þá þarf að færa allt efni yfir á annan notenda áður en hann er tekinn út úr kerfinu svo gögn eyðist ekki með notendanum.
Það er gert í „Bakendanum“ með því að fara í „Notendur“ og undir nafni þess sem á að eyða út er ýtt á „Eyða“ og þá kemur upp dálkurinn „Eyða notendum“. Þar er hakað í „Flytja eignarhald á efni til“ og er þar valið annar admin sem eignarhald námskeiðs færist yfir á. Þá er hægt að ýta á "staðfesta eyðingu". Þá helst allt efni inni í kerfinu þó notandinn sé farinn.