Námskeiðs stillingar

Stillingar námskeiða leyfa þér að skilgreina ákveðin skilyrði fyrir hvernig notandi öðlast og viðheldur aðgengi að námskeiðinu þínu. Hér að neðan munum við fara í gegnum stillingarnar.

  • Fara í bakendann “learning management”  > Námskeið
  • Smelltu á námskeiðið sem þú vilt breyta
  • Smelltu á Flipann „Stillingar“ efst á síðunni
  • Finndu hluta sem heitir „Aðgangsstillingar námskeiða“

Stillingar: stillingar eru hvernig þú ákvarðar hvernig notandi mun öðlast aðgang að námskeiði. Það eru 4 námskeiðs aðgangar til að velja úr. Sem sjálfgefið eru öll námskeið stillt á „Ókeypis“.

Ókeypis: Reglur sem gilda um ókeypis námskeið:

  • Notandi verður að vera skráður/innskráður til að fá aðgang
  • Ekki er krafist greiðslu.
  • „Byrja námskeið“ hnappurinn er sýnilegur notendum sem ekki eru skráðir.

Kaupa núna: Reglur sem gilda um „Kaupa núna“ námskeið:

  • Notandi verður að vera skráður/innskráður til að fá aðgang
  • Krefst einnar greiðslu

Endurtekið: Endurtekið er mjög líkt „Kaupa núna“, nema með endurteknum greiðslum (í stað einstaka greiðslna).

Reglur sem gilda um endurtekin námskeið:

  • Notandi verður að vera skráður/innskráður til að fá aðgang
  • Krefst endurtekinna gjalda (veldu gjalddaga í X dögum, vikum, mánuðum eða árum).

Lokað: Reglur sem gilda um lokuð námskeið:

  • Notandi verður að vera skráður/innskráður til að fá aðgang
  • Leyfir þér að selja námskeiðið með viðbótum fyrir netverslun eða áskriftarþjónustu
  • Leyfir sérsniðinn URL reit til að senda notendur á sérsniðna sölu- eða útskriftarsíðu (hnappur er aðeins sýndur ef þú slærð inn URL).

Kröfur fyrir námskeið „access settings“ hér getur þú sett upp forkröfur bakvið námskeið.

  • „None“ (sjálfgefið)
    • Engar forkröfur gilda fyrir námskeiðið.
  • “Prerequisite Námskeið”
    • „Eitthvað valið námskeið“ Ef notandi hefur lokið við eitthvað af völdum námskeiðum getur hann fengið aðgang að þessu námskeiði.
    • „Öll valin“ – Notandi verður að ljúka öllum völdum námskeiðum til að fá aðgang að þessu námskeiði.

Stig fyrir námskeið: Er einföld leið til að hvetja notendur. Þeir geta einnig verið notaðir sem forkröfur fyrir önnur námskeið.

Gildistími aðgangs að námskeiði: Með aðgangstíma getur þú valið að veita aðgang að námskeiði í takmarkaðan tíma, byggt á dagsetningu skráningar (dagsetning þegar þeir skráðu sig í námskeiðið).

Upphafsdagur:  „Upphafsdagur“ gerir það að verkum að notendur á síðunni geta skráð sig/keypt námskeið, en þeir geta ekki byrjað á námskeiðinu fyrr en á upphafsdegi.

Lokadagur: Lokadagur ákvarðar hvenær aðgangur að námskeiði endar fyrir alla skráða notendur.

Notkun á bæði upphafs- og lokadagsetningum gerir þér kleift að keyra námskeið fyrir notendur. Hentar þegar þú vilt keyra námskeið fyrir mismunandi hópa notenda, á mismunandi tíma (t.d. vor, sumar, haust, vetur).

Fjöldatakmörk nemanda : Leyfir þér að setja takmörk á fjölda námskeiðsnotenda sem geta skráð sig í námskeiðið.

Notendur námskeiðs: Þessi hluti leyfir þér að sjá hvaða notendur eru nú þegar skráðir í námskeiðið. Einnig getur þú skráð notendur eða fjarlægt þá.

Stillingar á Þróun námskeiðs stjórnar því hvernig nemendur sjá efnið og í hvaða röð þau þurfa að taka námskeiðið.

  • Skrefaröð: Nemandi þarf að taka námskeiðið í tiltekinni röð.
  • Frjálst: Leyfir nemanda að fara í gegnum námskeiðið án þess að fylgja tilgreindri skrefaröð.

Birtingarvalmöguleikar og viðfangsefni: Þessi hluti stjórnar stillingum á útliti, viðfangsefni og upplifun notenda af námskeiðinu.  

Hægt er að stilla hvort innihald námskeiðs er sýnilegt öllum í kerfinu eða einungis þeim notendum sem eru skráðir í námskeiðið.

„Undir „námskeið completion page“ er hægt að stilla hvert notanda er vísað eftir að námskeiði er lokið. Ef t.d. er valið „Mín námskeið“ opnast mín námskeið síðan þegar ýtt er á „complete“ við eftirfarandi námskeið.

Innskráningarstillingar fyrir Námskeið

Stjórnaðu hvort notendur séu sjálfkrafa skráðir í þetta námskeið eftir skráningu á vefsíðunni. Þessar stillingar einfalda aðgang fyrir bæði nýja og núverandi notendur.

Join New Registrations

Sjálfvirk skráning nýrra notenda í námskeiðið við skráningu.

Ef kveikt er á þessari stillingu verða allir sem stofna nýjan aðgang sjálfkrafa skráðir í þetta námskeið. Þetta hentar vel fyrir innleiðingu nýrra notenda, t.d. í nýliðanámskeið.

Valkostir:

  • Allar nýskráningar – Allir nýir notendur verða skráðir sjálfkrafa í námskeiðið.
  • Engin – Nýir notendur þurfa að skrá sig handvirkt eða fá skráningu frá stjórnanda.

 

Join Existing Members

Bæta öllum núverandi notendum við námskeiðið.

Ef kveikt er á þessari stillingu verða allir notendur sem þegar eru skráðir á vefinn sjálfkrafa skráðir í þetta námskeið. Þetta er gagnlegt þegar bjóða á eldri notendum aðgang að nýju eða uppfærðu efni.

Valkostir:

  • Allir núverandi notendur – Allir sem þegar eru með aðgang fá aðgang að námskeiðinu strax.
  • Engin – Núverandi notendur verða ekki skráðir sjálfkrafa.

Gott er að hafa í huga að þessar stillingar spara tíma þegar nýtt námskeið er sett í gang eða þegar námskeið á að ná til allra notenda. Mælt er með að tilkynna notendum ef þeir verða sjálfkrafa skráðir