Að fjarlægja nemendur úr námskeiði.

Hægt er að fjarlægja nemendur úr námskeiði bæði í framenda og í bakenda.

Bakendi

Í bakenda er valið „Learning Management“úr vinstri valmyndinni og þar valið „Námskeið“ hér er valið það námskeið sem fjarlægja á af notanda, undir námskeiðinu er valið „breyta“.

Hér er farið í „Stillingar“  skrollað neðst og undir „Námskeið students“  er valinn sá notandi sem á að fjarlægja úr námskeiðinu úr hægri dálk og svo er ýtt á ← örina og svo er valið „save“. Núna hefur námskeiðið færst yfir úr „Mín námskeið“ yfir í „Önnur námskeið“.

Einnig er hægt að skrá hópa úr námskeiðum en þá er valið „Hópar“ og  valið sá hópur sem á að fjarlægja úr námskeiðinu úr hægri dálk og svo er ýtt á ← örina og ýtt á „Save“. Þá hefur allur hópurinn verið skráður úr námskeiðinu.

Framendi

Í framenda er valið „Stjórnborð“ og þar valið „Námskeið“ næst er valið það námskeið sem fjarlægja á af notanda.

Því næst er farið í notendur og hakað í þá nemendur sem á að fjarlægja úr námskeiðinu og ýtt á ← örina til að færa notandann. Þegar búið er að færa notandann úr hægri dálk yfir í vinstri  er valið „vista“. Núna hefur námskeiðið færst yfir úr „Mín námskeið“ yfir í „Önnur námskeið

Hafa ber í huga að þegar námskeið er skráð af notanda eða hóp þá eyðist öll námsframvinda notandans!