Sjálfvirkni inni í formi (Forms)

Þegar búið er til form fyrir t.d. líkamsræktarstyrk þá er hægt að stilla það þannig að kerfið fyllir inn upplýsingar um notandann. Er það gert með því opna nýtt form og þar inni undir Add fields" er valið „ Single line text"

Svo er farið í "settings við dálkinn.

Og þar er valið "field settings" og sett inn hvað á að fara í dálkinn undir "field label"

Ekki þarf að haka í "required" þar sem kerfið sér um að fylla inn í dálkinn.

Næst er valið "Appearance" og við "Placeholder" er merki sem ýtt er á og þar er hægt að velja hvað á að birtast í dálknum þegar notandinn opnar forms. Ef valið er "{user:display_name}" þá kemur "birt nafn" notandans inn í dálkinn.

Hægt er að láta kerfið fylla inn eftirfarandi upplýsingar:

Netfang notanda

Kennitala notanda

Dagsetningu þegar skjal er fyllt út

Einnig er hægt að stilla forms upp þannig að ef ekki er hakað í alla reiti þá er ekki hægt að hengja skjal við eða senda inn umsókn. Farið er í "stillingar" á viðhengi .

Undir "Field Settings" er valið "Conditional Logic"

og þar eru valin þau skilyrði sem eiga við hverju sinni.

Sama er gert við senda inn hnappinn.

Núna er ekki hægt að senda inn umsókn nema það sé búið að haka við alla reiti og hlaða inn skjali.