Skjöl í Innraneti (gagnasafni)
Til þess að setja inn PDF eða PPT skjal inn í Innranet(gagnasafn) þá er byrjað á að fara í bakendann og velja Innranet(gagnasafn) þegar þar er komið þarf að slá inn nafn á greininni/skjalinu og svo ýtt á plúsinn og valið "document"

Hérna er valið «media Library»

Valið er skjal í “media Library» ef búið er að hlaða inn skjali ef ekki þá er farið í «upload files» og skjal sótt úr tölvu og svo er hakað í skjalið og ýtt á «velja»neðst í hægra horni.

þegar skjalið hefur birst þá “Viewer” breytt í «Browser based» og til þess að sjá ekki litlar myndir af hverri síðu þá er ýtt á samasem merkið á PDF skjalinu og þá birtist skjalið eitt og sér.

Til þess að láta skjalið opnast í nýjum flipa þegar smellt er á það þarf að kveikja á "open in new tab" stillingunni. Einnig er hægt að leyfa notendum að hlaða skjalinu niður með því að kveikja á "Show download button" stillingunni.
