Lýsing námskeiðs og skráning

Microsoft Loop 2024

Microsoft Loop er nýtt forrit frá Microsoft sem hjálpar þér að hugsa, skipuleggja og skapa, fyrir þig sjálfan eða í samvinnu með teymi. Það á að gera samvinnu auðveldari og hagkvæmari þegar hugmyndir eru skipulagðar, efni og eða verkefni eru að þróast. Loop hjálpar til við að hafa auðveldari aðgang að efni sem þú ert að vinna með og býður upp á betra samstarf.
 

Fyrir hverja?
Námskeiðið hentar þeim sem vilja kynna sér út á hvað Loop gengur, hvernig er hægt að nota það í leik og starfi. Kynntar eru inn hugmyndir að notkun forritsins en stór kostur þess er þegar unnið er með verkefni með Loop þá haldast þau sífellt lifandi.  
 

Námskaflar og tími:

  • Inngangur - 1 mínúta.
  • Hvað er Microsoft Loop - 2 mínútur.
  • Stofna vinnusvæði - 2 mínútur.
  • Stofna nýja síðu - 3 mínútur.
  • Loop hlutir (components) - 5 mínútur.
  • Loop hlutir frá Teams - 5 mínútur.
  • Texta síða - 3 mínútur.
  • Planner í Loop - 1 mínúta.
  • Myndband inn í Loop - 1 mínúta.
  • Loop verkefni í Planner - 2 mínútur.
  • Comment í Loop -
  • Afrita heila síðu - 1 mínúta.
  • Hugmyndasíða - 2 mínútur.
  • Síður í tímaröð - 1 mínúta.
  • Loop fundargerð - 3 mínútur.
  • Samantekt - 3 mínútur.

Heildarlengd: 35 mínútur.

Verð:
24.000 kr.

Hagnýtar upplýsingar

  • Fjarnám á netinu, byrjaðu að læra núna!
  • Lærðu á þínum hraða, eins oft og hvar og hvenær sem er yfir 12 mánaða tímabil.
  • Námskeiðið er í boði á sérkjörum fyrir vinnustaði - sjá nánar.
  • Mörg stéttarfélög veita styrk fyrir allt að 100% af verði námskeiðs.
  • Vinnustaðir geta sótt um styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð inni á www.attin.is – óháð starfsmanni.
  • Vinnumálastofnun veitir möguleika á styrk fyrir skjólstæðinga sína fyrir allt að 75% af verði námskeiðs.

 

Leiðbeinandi

Hermann Jónsson

Hermann Jónsson, kennslustjóri tæknináms Akademias, hefur starfað í tölvubransanum í fjölda ára, meðal annars sem framkvæmdastjóri hjá tölvuskólanum iSoft, tölvuskólanum NTV og sem fræðslustjóri Advania.
Hermann hefur margra ára reynslu sem kennari í upplýsingatæknigeiranum.

Hoobla - Systir Akademias