Meistarinn í fjárfestingum
Hefst 22. ágúst
Meistarinn í fjárfestingum er hannaður fyrir þá sem vilja öðlast djúpa og hagnýta þekkingu á fjárfestingum, bæði hefðbundnum og óhefðbundnum, og öðlast skarpa yfirsýn yfir þau fjölbreyttu tækifæri sem felast í fjármálamörkuðum, fasteignum og nýsköpun.
Námið sameinar fjögur sérhæfð námskeið sem leiða þátttakendur í gegnum lykilsvið fjárfestinga og fjármögnunar – frá grunnstoðum yfir í sérhæfð form eins og fagfjárfestingar og alþjóðleg fjárfestingamódel. Námið er rammað inn með vinnustofu í upphafi og lýkur með Demo degi, þar sem þátttakendur kynna verkefni sín og tengja saman lærdóminn úr námsleiðinni.
Þetta er kjörið nám fyrir frumkvöðla, fjárfesta, ráðgjafa og stjórnendur sem vilja dýpka færni sína í greiningu, ákvörðunartöku og áætlanagerð í fjármálum og fjárfestingum.
Skipulagið:
Við skráningu í Meistarann í stjórnun er nemandinn búinn að tryggja sér sæti í námskeiðunum hér að ofan að andvirði 1.076.000kr.
Verð fyrir Meistarinn í fjárfestingum: 799.000 kr
Nánari upplýsingar má nálgast hjá Þórarni Hjálmarssyni, thorarinn@akademias.is
Námið er í boði sem staðnám í Borgartúni 23, fjarnám (í beinni á netinu eða með upptökum þegar hentar) eða sem blönduð námsleið.
Hægt er að greiða með kreditkorti og fá reikning í heimabanka en jafnframt dreifa greiðslum. Hafið samband við bokhald@akademias.is til að dreifa greiðslum.
Mörg stéttarfélög veita styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð fyrir allt að 90% af náminu en jafnframt eru aðrar styrkjaleiðir færar fyrir fyrirtæki (sjá t.d. www.attin.is). Hafðu samband og við aðstoðum asdis@akademias.is