Lýsing námskeiðs og skráning

Leiðtogi í fasteignaviðskiptum – með áherslu á fjárfestingar

Fasteignir eru einn helsti fjárfestingarkostur einstaklinga og fyrirtækja og mikilvægur þáttur í eignastýringu. Fjárfestingar í fasteignum krefjast greiningarvinnu, stefnumótandi hugsunar og markaðsskilnings. Þetta námskeið er hannað fyrir þá sem vilja þjálfa sig sem leiðtoga á sviði fasteignafjárfestinga – hvort sem það eru sjálfstæðir fjárfestar, stjórnendur í fasteignafélögum eða ráðgjafar. Þátttakendur fá innsýn í hvernig leiðtogar meta áhættu, byggja fjárfestingastefnu og taka upplýstar ákvarðanir í síbreytilegu markaðsumhverfi.

Markmið námskeiðsins

  • Að efla hæfni þátttakenda til að móta og framkvæma fjárfestingarstefnu í fasteignum.
  • Að dýpka skilning á áhættumati, fjármögnunarleiðum og arðsemisgreiningu.
  • Að styrkja leiðtogafærni í tengslum við ákvarðanatöku, samstarf og verkefnastýringu.
  • Að veita aðgang að raunverulegum dæmum og aðferðum úr íslensku atvinnulífi.

Helstu viðfangsefni

  • Hvað einkennir árangursríka leiðtoga í fasteignafjárfestingum?
  • Stefnumótun og langtímaáætlanir í fasteignaverkefnum
  • Fjármögnun fasteignafjárfestinga: eiginfjármögnun, lán og samstarf
  • Áhættumat og greining á arðsemi
  • Leiga vs. sala: vaxtarmöguleikar og tekjustreymi
  • Innviðagreining og staðarval
  • Skipulagsmál og lagaumhverfi fasteigna viðskipta

Hagnýtar upplýsingar

ATH: Námskeiðið er bæði í stað- og fjarnámi. Nemendur í fjarnámi geta valið að vera í beinni á Zoom eða horft á upptökurnar þegar hentar. Nemendur í staðnámi mæta í Borgartún 23, 3. hæð. 

Námskeiðið er 18 klst., þ.e. 6 áfangar, 3 klst. hver áfangi. Kennsla hefst 13. október og er kennt á mánudögum 17-20 og miðvikudögum 17-20 í þrjár vikur.

Námsmat: Einstaklingsverkefni og hópverkefni.

Námsgjöld: 269.000 kr. 

Hægt er að greiða með kreditkorti og fá reikning í heimabanka en jafnframt dreifa greiðslum í allt að 6 mánuði. Hafið samband við bokhald@akademias.is til að dreifa greiðslum.

Mörg stéttarfélög veita styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð fyrir allt að 90% af náminu en jafnframt eru aðrar styrkjaleiðir færar fyrir fyrirtæki, óháð starfsmanni (sjá www.attin.is). Hafðu samband og við aðstoðum akademias@akademias.is.