Meistarinn í frumkvæði og verðmætasköpun
Byrjar 22. ágúst
Meistarinn í frumkvæði og verðmætasköpun er hannað fyrir frumkvöðla, stjórnendur og sérfræðinga sem vilja efla hæfni sína í nýsköpun, viðskiptamódelum, fjármögnun og verkefnastjórnun – allt með áherslu á að skapa raunverulegt virði í nútímarekstri. Námið byggist á fjórum öflugum námskeiðum sem eru valin sérstaklega fyrir þessa námsleið og rammað inn með vinnustofum í upphafi og lokin.
Markmiðið er að bjóða sveigjanlegt og markvisst nám sem dregur fram þann drifkraft og frumleika sem þarf til að hrinda hugmyndum í framkvæmd og byggja upp verðmætan rekstur.
Skipulagið:
Við skráningu í Meistarann í stjórnun er nemandinn búinn að tryggja sér sæti í námskeiðunum hér að ofan að andvirði 1.076.000kr.
Verð fyrir Meistarinn í frumkvæði og verðmætasköpun: 799.000 kr
Nánari upplýsingar má nálgast hjá Þórarni Hjálmarssyni, thorarinn@akademias.is
Námið er í boði sem staðnám í Borgartúni 23, fjarnám (í beinni á netinu eða með upptökum þegar hentar) eða sem blönduð námsleið.
Hægt er að greiða með kreditkorti og fá reikning í heimabanka en jafnframt dreifa greiðslum. Hafið samband við bokhald@akademias.is til að dreifa greiðslum.
Mörg stéttarfélög veita styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð fyrir allt að 90% af náminu en jafnframt eru aðrar styrkjaleiðir færar fyrir fyrirtæki (sjá t.d. www.attin.is). Hafðu samband og við aðstoðum asdis@akademias.is