Lýsing námskeiðs og skráning

Leiðtogi í verkefnastjórnun

Akademias býður upp á diplomanámið Leiðtogi í verkefnastjórnun. Námskeiðið er samstarfsverkefni fjölda innlendra og erlendra sérfræðinga og fyrirtækja sem vilja efla verkefnastjórnun hjá hinu opinbera, í íslensku atvinnulífi og þriðja geiranum.

Námskeiðið Leiðtogi í verkefnastjórnun snýst um að skapa þekkingu, færni og leikni til þess að stýra verkefnum innan fyrirtækja og stofnana með því að nýta aðferðafræði verkefnastjórnunar og hugbúnaðarlausnir eins og Asana og Clickup. Sérstök áhersla er lögð á nemendur geti stýrt bæði einföldum og flóknari verkefnum.

Leiðbeinendur námsins eru um 10 talsins sem eru sérfræðingar verkefnastjórnun á stórum sem smáum verkefnum. Hver áfangi hefur á bilinu 2 – 3 leiðbeinendur sem segja frá eigin reynslu og raundæmum. Umsjónarmaður er Eyþór Ívar Jónsson, hjá Akademias sem hefur stýrt fjölmörgum nýsköpunarverkefnum og ráðstefnum. Eyþór stýrir m.a. ráðstefnun European Academy of Management og er jafnframt forseti Akademias og skipuleggur miniMBA og Leiðtoganám Akademias.

Aðferðafræðin byggir á stuttum hópverkefnum, fyrirlestrum og samtölum sérfræðinga. Aðferðafræðin leggur áherslu á samskiptahæfni, lausn vandamála og greiningu tækifæra, gagnrýna- og skapandi hugsun.

Innifalið í námskeiðinu er rafræna námslínan Verkefnasprettur 

Leiðbeinendur:

Eyþór Ívar Jónsson – Forseti Akademias

Sigurður R. Ragnarsson - Framkvæmdastjóri ÍAV og sérfræðingur í verkefnastjórnun með æðstu viðurkenningu íslendinga í verkefnastjórnun.
Christina Unterhitzenberger - Prófessor við háskólann í Leeds í Bretlandi og forstöðukona Leeds Center for Projects. Christine hefur skrifað um verkefnastjórnun fyrir fjölda alþjóðlegra vísindarita.
Ísleifur Þórhallsson - Framkvæmdastjóri Senu, Ísleifur hefur leitt nokkur af stærstu tónlistar- og viðburðarverkefnum sem framkvæmd hafa verið á Íslandi, m.a. tónleika Ed Sheeran.
Brynjar Már Karlsson - Forstöðumaður verkefnastofu hjá Icelandair sem sér um yfirstjórn á öllum stærri stefnumarkandi verkefnum hjá félaginu. 
Linda Lyngmo - Stafrænn leiðtogi hjá Högum. Linda hefur meðal annars stýrt þverfaglegum verkefnum á borð við sjálfvirk greiðslumöt og lánaferli, stýrt þróun á verðlaunavefum líkt og Ísland.is og fleira.
Jón Axelsson - Framkvæmdastjóri Skólamatur, sem er framleiðslufyrirtæki á skólamáltíðum fyrir grunnskóla og hefur vaxið hratt á undanförnum árum. 
    

Áfangar:

  1. Verkefnastjórnun – Tilgangur og aðferðafræði
  2. Teymið og hagaðilar
  3. Aðferðafræði og tækni
  4. Stefnumarkandi verkefni
  5. Umfangsmikil verkefni
  6. Verðmætasköpun verkefna

HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR

Námskeiðið hefst 20.nóvember 2024. Kennt verður í 3vikur á miðvikudögum frá 13-16 og á fimmtudögum frá 9-12.

Námið er í boði sem staðnám í Borgartúni 23 eða fjarnám (í beinni á netinu eða með upptökum þegar hentar) eða sem blönduð námsleið. 

Námið er  18 klst., þ.e. 6 áfangar, 3 klst. hver áfangi.

Námsmat: Hópverkefni í tímum og lokaverkefni sem byggir á raunhæfu verkefni sem tengist vinnu eða áhugamáli nemenda (einstaklingsverkefni)

Námsgjöld: 269.000 kr. 

Hægt er að greiða með kreditkorti og fá reikning í heimabanka en jafnframt dreifa greiðslum í allt að 6 mánuði. Hafið samband við bokhald@akademias.is til að dreifa greiðslum.

Mörg stéttarfélög veita styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð fyrir allt að 90% af náminu en jafnframt eru aðrar styrkjaleiðir færar fyrir fyrirtæki, óháð starfsmanni (sjá www.attin.is). Hafðu samband og við aðstoðum akademias@akademias.is.

Akademias Executive MBA

Þetta nám er hluti af executive MBA námi Akademias.

Þetta nám er hluti af Akademias Executive MBA. Executive MBA námið er hannað fyrir metnaðarfullt fólk sem vill mennta sig fyrir tækifæri framtíðarinnar. Með því að raða saman nokkrum námum er hægt að tryggja sér Akademias Executive MBA gráðu, sjá nánar hér.

Smelltu hér ef þú vilt bóka stuttan fund við Dr. Eyþór Ívar Jónsson sem hefur umsjón með Akademias Executive MBA náminu.

 

Leiðbeinandi

Dr. Eyþór Ívar Jónsson

Akademias Executive MBA

Þetta nám er hluti af executive MBA námi Akademias.

Þetta nám er hluti af Akademias Executive MBA. Executive MBA námið er hannað fyrir metnaðarfullt fólk sem vill mennta sig fyrir tækifæri framtíðarinnar. Með því að raða saman nokkrum námum er hægt að tryggja sér Akademias Executive MBA gráðu, sjá nánar hér.

Smelltu hér ef þú vilt bóka stuttan fund við Dr. Eyþór Ívar Jónsson sem hefur umsjón með Akademias Executive MBA náminu.