Meistarinn í stjórnun
Byrjar 22. ágúst
Meistarinn í stjórnun er hnitmiðað og öflugt nám fyrir einstaklinga sem vilja efla hæfni sína, dýpka skilning á stjórnunarhlutverkinu og ná betri árangri í starfi. Námið byggist á völdum námskeiðum frá Akademias sem tekin eru saman í eina samfellda námsleið, með vinnustofu í upphafi og lok sem ramma námskeiðin inn og tryggja samhengi og dýpri samþættingu á milli efnistaka.
Þátttakendur fá tækifæri til að vinna með eigin verkefni og áskoranir í starfi, læra af reyndum kennurum og stjórnendum, og mynda tengslanet með öðrum þátttakendum.
Skipulagið:
Við skráningu í Meistarann í stjórnun er nemandinn búinn að tryggja sér sæti í námskeiðunum hér að ofan að andvirði 907.000kr.
Verð fyrir Meistarinn í stjórnun: 679.000 kr
Nánari upplýsingar má nálgast hjá Þórarni Hjálmarssyni, thorarinn@akademias.is
Námið er í boði sem staðnám í Borgartúni 23, fjarnám (í beinni á netinu eða með upptökum þegar hentar) eða sem blönduð námsleið.
Hægt er að greiða með kreditkorti og fá reikning í heimabanka en jafnframt dreifa greiðslum. Hafið samband við bokhald@akademias.is til að dreifa greiðslum.
Mörg stéttarfélög veita styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð fyrir allt að 90% af náminu en jafnframt eru aðrar styrkjaleiðir færar fyrir fyrirtæki (sjá t.d. www.attin.is). Hafðu samband og við aðstoðum asdis@akademias.is