Meistarinn í mannauði
Hefst 22. ágúst
Meistarinn í mannauði er framsækin námsleið fyrir þá sem vilja efla hæfni sína í nútímalegri mannauðsstjórnun með áherslu á samskipti, fræðslu, teymisvinnu og hönnun á upplifun starfsmanna. Námið sameinar nýjustu aðferðir og hugsun í mannauðsmálum, fræðslustarfi og viðburðastjórnun, með hagnýta nálgun og raunhæf verkefni að leiðarljósi.
Þátttakendur fá að vinna með eigin áskoranir og verkefni, taka þátt í virkum vinnustofum og kynnast nýjum verkfærum sem nýtast í því að skapa betra starfsumhverfi, efla liðsheild og byggja upp menningu sem stuðlar að árangri.
Námið hefst með vinnustofu þar sem rammað er inn markmið og leið, og lýkur með Demo degi þar sem þátttakendur kynna verkefni sín og spegla það sem lært hefur verið.
Skipulagið:
Við skráningu í Meistarann í stjórnun er nemandinn búinn að tryggja sér sæti í námskeiðunum hér að ofan að andvirði 857.000kr.
Verð fyrir Meistarinn í mannauði: 639.000 kr
Nánari upplýsingar má nálgast hjá Þórarni Hjálmarssyni, thorarinn@akademias.is
Námið er í boði sem staðnám í Borgartúni 23, fjarnám (í beinni á netinu eða með upptökum þegar hentar) eða sem blönduð námsleið.
Hægt er að greiða með kreditkorti og fá reikning í heimabanka en jafnframt dreifa greiðslum. Hafið samband við bokhald@akademias.is til að dreifa greiðslum.
Mörg stéttarfélög veita styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð fyrir allt að 90% af náminu en jafnframt eru aðrar styrkjaleiðir færar fyrir fyrirtæki (sjá t.d. www.attin.is). Hafðu samband og við aðstoðum asdis@akademias.is