Lýsing námskeiðs og skráning

Leiðtogi í Copilot

Vertu leiðtogi í nýtingu Copilot á þínum vinnustað

Vinnustofan er í samstarfi við Wise og byggir á hagnýtum lausnum og raunverulegum dæmum.

Tryggðu þér sæti tímanlega, fyrri vinnustofa var uppseld!

Leiðtogi í Copilot er tveggja daga hagnýt vinnustofa fyrir þá sem vilja verða leiðandi í nýtingu Copilot innan sinna skipulagsheilda. Námskeiðið er sérstaklega sniðið að þeim sem vilja ekki aðeins læra að nýta Copilot sjálfir – heldur einnig geta miðlað þeirri þekkingu áfram til annarra.

Þátttakendur fá yfirgripsmikla þjálfun í Copilot í Microsoft 365 forritum, þjálfun í hagnýtri prompt-tækni og sérstakan þjálfunarpakka fyrir fræðslu til annarra. Markmiðið er að gera þátttakendur að leiðtogum í fræðslu, innleiðingu og umbreytingu á vinnubrögðum með gervigreind.

Markmið námskeiðsins

  • Tileinka sér helstu notkunarmöguleika Copilot í Microsoft 365
  • Læra að búa til markviss og áhrifaríkar fyrirspurnir (prompt)
  • Undirbúa og halda fræðslu um Copilot fyrir samstarfsfólk
  • Verða leiðtogi í nýtingu gervigreindar í starfi

Helstu umfjöllunarefni

  • Grunnatriði Copilot
  • Copilot í:
    • Word
    • Excel
    • PowerPoint
    • Outlook
    • Teams
  • OneNote & Loop
  • Prompt-tækni: hvernig þú spyrð til að fá það sem þú vilt
  • Þjálfunarpakki: hvernig þú kennir öðrum á Copilot

Fyrir hverja er námskeiðið?

Fyrir stjórnendur, teymisstjóra, fræðsluaðila og aðra sem vilja verða drifkraftar í innleiðingu gervigreindar og Copilot í sinni skipulagsheild.

Kennarar

Hermann Jónsson, Wise

Hagnýtar upplýsingar

Nemendur þurfa gæta þess að vera með virkt Microsoft 365 Copilot leyfi og mæta með tölvur.

Vinnustofan hefst 8. desember 2025. Kennt verður í tvo daga, 8. og 9. desember frá kl. 9-16 báða dagana. Innifalið í námskeiðinu er hádegisverður báða daga, kaffiveitingar og námskeiðsgögn auk efnis sem nýtist við fræðslu innan skipulagsheildar nemenda.

Vinnustofan er eingöngu í boði sem staðnám í Borgartúni 23.

Námsgjöld: 269.000 kr.

Frekari upplýsingar um vinnustofan veitir Þórarinn Hjálmarsson, thorarinn@akademias.is

Hægt er að greiða með kreditkorti og fá reikning í heimabanka en jafnframt dreifa greiðslum í allt að 6 mánuði. Hafið samband við bokhald@akademias.is til að dreifa greiðslum.

Mörg stéttarfélög veita styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð fyrir allt að 90% af náminu en jafnframt eru aðrar styrkjaleiðir færar fyrir fyrirtæki, óháð starfsmanni (sjá www.attin.is). Hafðu samband og við aðstoðum akademias@akademias.is.

 

Leiðbeinandi

Hermann Jónsson, Wise