Lýsing námskeiðs og skráning

Vefið sjálf með Squarespace

Vilt þú læra að búa til flottan vef með litlum sem engum tilkostnaði? Vilt þú hafa einfalda leið til að uppfæra efni og bæta við upplýsingum á vefnum þínum? Vilt þú sleppa við tæknilegt vesen og bras við vefþjóna og hýsingu? Þá er vefsíðugerð í Squarespace fyrir þig.

Squarespace er eitt vinsælasta vefumsjónarkerfið í heiminum í dag en yfir 2,5 milljónir vefja nýta það. Kerfið er einfalt og þægilegt í notkun ásamt því að bjóða upp á sveigjanleika og hentar því vefjum af ýmsum stærðum og gerðum hvort sem um sé að ræða fyrirtæki, vefverslanir, einyrkja eða bloggsíður.

Á þessu námskeiði verður farið yfir grunnatriði þess að setja upp nýjan vef í Squarespace, velja sniðmát sem hentar og aðlaga útlit. Einnig verður farið yfir grunnatriði þess sem einkenna góða vefi, hvað þarf að hafa í huga fyrir leitarvéla bestun og efnistökum fyrir vef.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Uppsetningu á vef Squarespace
  • Aðlögun útlits og vörumerkis
  • Efnistök og uppfærslur á efni
  • Bestu venjur við uppsetningu og leiðartré
  • Leitarvélabestun efnis
  • Vefmælingar
  • Setja upp einfalda vefverslun
  • Tengja lén við vefinn

Hagnýt atriði:

  • Fjarnám á netinu, byrjaðu að læra núna!
  • Námskeiðin eru innifalin fyrir alla fyrirtækjaviðskiptavini Nova
  • Lærðu á þínum hraða, hvar og hvenær sem er.
  • Skráning gefur aðgang að náminu í 12 mánuði og hægt er að horfa og læra eins oft og fólk kýs á tímabilinu.
  • Námið er í 13 hlutum og er um 2,5 klst í heildina. 
  • Verð 19.000 kr
  • Tilboð! Kauptu fjögur MasterClass námskeið að eigin vali á 59.900 kr. eða sex námskeið á 99.900 kr.
  • Námskeiðið er einnig í boði á sérkjörum fyrir fyrirtæki og stofnanir, þá aðgengilegt fyrir alla starfsmenn í gegnum netið en jafnframt sem nám inni í kennslukerfi fyrirtækja (sbr. Eloomi). Hafið samband við gudmundur@akademias.is fyrir nánari upplýsingar. Sjá meira um fræðsluefni og fyrirtækjaskóla Akademias hér.
  • Mörg stéttarfélög veita styrk fyrir allt að 90% af námskeiðsgjaldi. Fyrirtæki geta einnig sótt um styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð (óháð starfsmanni) inná www.attin.is
  • Vinnumálastofnun veitir jafnframt möguleika á styrk fyrir skjólstæðinga sína fyrir allt að 75% af námskeiðsgjaldi.
  • Sendu okkur línu ef við getum aðstoðað akademias@akademias.is

Fyrir hverja?

Þá sem vilja búa til flottan vef með litlum sem engum tilkostnaði, þá sem vilja sleppa við tæknilegt vesen og bras við vefþjóna og hýsingu og þá sem vilja getað uppfært efni og bætt við upplýsingum á vefinn sinn á einfaldan hátt.

Leiðbeinandi:

Einar Þór Gústafsson hefur unnið í vefmálum í rúm 20 ár. Einar lærði margmiðlun í SAE í New York og hefur starfað meðal annars sem vefstjóri Íslandsbanka og framkvæmdastjóri vöruþróunar hjá Meniga. Einar er einnig stofnandi Getlocal sem er vefsölukerfi sérsniðið fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu og starfar nú sem Studio Manager hjá Aranja sem er ein öflugasta vefstofa landsins. Einar var einn stofnanda Samtaka vefiðnaðarins og sat í stjórn ásamt því að sinna formennsku. Verkefni á vegum Einars hafa hlotið ýmis verðlaun þ.m.t. Besti vefur íslands á Íslensku Vefverðlaununum. Nánari upplýsingar um Einar má finna á beautyvsfunction.com

 

Leiðbeinandi

Einar Þór Gústafsson

Hoobla - Systir Akademias