Claude – Lærðu að búa til lausnir
Útgáfudagur: 28/10/26
Síðast uppfært: 05/11/26
Námskeiðið sýnir hvernig þú getur látið Claude vinna með skjöl og verkefni og síðan smíðað og prófað einfalda vefsíðu í Claude Code. Dæmið Kaffihár fylgir efninu: þú vinnur með minnispunkta, mótar lýsingu og gætir þess að upplýsingar sem vantar séu ekki settar fram sem staðreyndir. Þú kynnist grunnatriðum HTML, CSS og JavaScript, áætlunum, leyfum, prófunum og lagfæringum. Síðar er farið yfir minnisreglur, færni, viðbætur og hönnun. Að lokum eru skoðuð regluleg og stærri verk, vistunarpunktar og yfirferð áður en efni er birt.
Fyrir hverja
Námskeiðið er ætlað fólki sem forritar ekki en vill nota Claude til að vinna með skjöl og verkefni eða búa til einfalda vefsíðu. Það hentar þeim sem þurfa að afmarka verkefni, fara yfir skjöl og útkomu og meta hvort niðurstaða samsvari beiðninni. Einnig er fjallað um hvernig þú prófar vefsíðu í síma og tölvu, lýsir mistökum og biður um lagfæringar, vinnur með útlit eða setur upp verk sem keyra reglulega. Námskeiðið sýnir hvernig hægt er að stýra vinnunni með áætlunum, leyfum og eigin yfirferð.
Hvað lærir þú
Afmarka beiðni með markmiði, efni, mörkum og skýrum prófunarskilyrðum.
Láta Claude vinna með skjöl og verkefnaskrár og sannreyna að efnið byggist á gefnum upplýsingum.
Útskýra hlutverk HTML, CSS og JavaScript og þekkja helstu hugtök sem birtast við smíði vefsíðu.
Velja vinnumöppu, leyfisstillingu og aðgang að tengingum út frá verkefninu.
Prófa vefsíðu í síma og tölvu, lýsa frávikum skýrt og biðja um afmarkaðar lagfæringar.
Skrá varanlegar verkefnisreglur í Claude.md og greina þær frá færni og viðbótum.
Vista útgáfur með Git og fara yfir staðreyndir, upplýsingar og efni áður en því er deilt.
Setja upp reglulegt verk með afmörkuðum gögnum, breytingaheimildum og skýrslu um niðurstöðu.
Fræðsluþættir
AI - Gervigreind
Kennari
Jóhann Tómas Portal er meðstofnandi og tæknistjóri NoLimit og jafnframt meðstofnandi og tæknistjóri Drífu. Hann stundar tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík og hefur meðal annars hannað kerfisarkitektúr Drífu og þróað stóran hluta lausnarinnar frá grunni, allt frá bakenda og notendaviðmóti til gagnatenginga og rekstrarinnviða. Hann leggur áherslu á að sýna hvernig gervigreind og stafræn verkfæri geta leyst raunveruleg verkefni í daglegum störfum.
Verð: 24.000 kr.
Hagnýtar upplýsingar
TILBOÐ á rafrænum námskeiðum
- Árs áskrift af um 160 MasterClass námskeiðum Akademias. Verð: 99.000 kr. Sjá nánar hér.
- Fimm rafræn námskeið að eigin vali: 59.900kr. með kóðanum fimman við kaup.
- Þrjú rafræn námskeið að eigin vali: 49.900kr. með kóðanum þrennan við kaup.
Kostir rafrænna námskeiða Akademias.
- Fjarnám á netinu, byrjaðu að læra núna!
- Lærðu á þínum hraða, eins oft og hvar og hvenær sem er yfir 12 mánaða tímabil.
- Námskeiðið er í boði á sérkjörum fyrir vinnustaði - sjá nánar.
- Mörg stéttarfélög veita styrk fyrir allt að 100% af verði námskeiðs.
- Vinnustaðir geta sótt um styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð inni á www.attin.is – óháð starfsmanni.
- Vinnumálastofnun veitir möguleika á styrk fyrir skjólstæðinga sína fyrir allt að 75% af verði námskeiðs.
Tilboð á fimm eða þremur námskeiðum
Einnig er hægt að velja einhver þrjú eða fimm rafræn námskeið að eigin vali í körfu.
- Fimman: Fimm námskeið að eigin vali á 59.900kr.
- Þrennan: Þrjú námskeið að eigin vali á 49.900kr.
Við greiðslu er afsláttarkóðinn þrenna eða fimma sleginn inn sem afsláttarkóði.