Lýsing námskeiðs og skráning

Ráðgjöf og fræðsla

Akademias hjálpar fyrirtækjum að ná árangri með aðferðum markaðsfræðanna. Ásamt reglulegum opnum námskeiðum og vinnustofum bjóðum við:

  • Fyrirtækjafræðslu: námskeið og fyrirlestrar um markaðs- og þjónustumál, klæðskerasniðin að þörfum viðskiptavina.
  • Mentoraðstoð og ráðgjöf í markaðstengdum verkefnum.

Starfsmenn frá nánast öllum 300 stærstu fyrirtækjum Íslands hafa verið þátttakendur ásamt starfsmönnum úr miklum fjölda minni fyrirtækja (sjá hér), út um allt land og úr öllum atvinnugreinum. Í heildina hafa á þriðja þúsund manns sótt námskeiðin.  

Fyrirtækjafræðsla

Á hverju ári förum við inn í fjölmörg fyrirtæki með námskeið og fyrirlestra. Hér að neðan eru örfá dæmi um umfjöllunarefnin:

  • Hvernig getum við endurhugsað markaðsstarfið svo við seljum meira?
  • Hvað er ofurþjónusta og hvernig geta fyrirtæki veitt ofurþjónustu?
  • Hvernig getum við náð meiri árangri með fjárfestingunni í markaðsmál? Hvar eigum við að fjárfesta og fyrir hvað?
  • Hvernig byggjum við sterk vörumerki?
  • Hvaða stafrænu leiðir eru farsæl fyrirtæki að nota við markaðsstarfið?
  • Leiðir og aðgerðir við að búa til einstaka og eftirminnilega upplifun fyrir viðskiptavini
  • Staðfærsla vörumerkis, mótun markaðsstefnu og leiðir til að gera vörumerki einstök
  • Blue Ocean Strategy vinnustofur, stefnumótun fyrirtækja
  • Hvernig getum við aukið samvinnu og traust með FISH! Philosophy?

Við tökum jafnframt að okkur markaðstengd verkefni, sem dæmi greiningar og staðfærslu vörumerkja, gerð markaðsáætlanna og vörumerkjarýni.

Við höfum jafnframt milligöngu um að finna sérfræðinga í hin ýmsu störf, bæði í föst störf og tímabundin verkefni innan fyrirtækja.

Leiðbeinandi

Guðmundur Arnar Guðmundsson hefur starfað sem markaðsstjóri Íslandsbanka, Nova og WOW air ásamt því að sitja í framkvæmdastjórn fyrirtækjanna. Ennfremur var hann markaðsstjóri Icelandair í Bretlandi og vörumerkjastjóri Icelandair á Íslandi.

Guðmundur hefur í átta ár kennt markaðsfræði og vörumerkjastjórnun við Háskólann í Reykjavík ásamt því að vera reglulegur gestafyrirlesari í öllum háskólum landsins.  Síðustu tíu ár hefur hann jafnframt kennt þúsundum starfsmanna í hundruðum fyrirtækja stafrænt markaðsstarf, stjórnu markaðsstarfs, þjónustustjórnun o.fl. Ennfremur hefur hann skrifað mikið um stjórnun, þjónustu- og markaðsmál og gaf út bókina Markaðssetning á netinu sem ruddi braut stafræns markaðsstarfs á Íslandi.

Guðmundur er hagfræðingur frá Acadia University í Kanada og með MBA frá Háskóla Íslands, auk þess að hafa sótt stjórnendanám, þ. á m.  við Harvard Business School. Hann hefur verið formaður ÍMARK, mentor í Startup Reykjavík og Startup Tourism, dómari í Gullegginu og markaðsráðgjafi fyrir fjölda fyrirtækja, af öllum stærðum og í mörgum ólíkum atvinnugeirum. Nýlega sem dæmi fyrir flugfélagið Play, Eldum rétt, Veritas og Avis.

Hafðu samband fyrir frekari upplýsingar:

Guðmundur Arnar Guðmundsson
s. 844 2700

Í fjölmiðlum

14. janúar 2020 - Fólk sem vörumerki, Morgunútvarp Rás 2 (byrjar á 00:35:00)

12. janúar 2020 - Hegðun á netinu getur eyðilagt atvinnumöguleika, Morgunblaðið

15. nóvember 2019 - Mikilvægasta leitarvélin er í huganum, Árvakur

2. október 2019 - Eru markaðsmál ferðaþjónustulandsins Íslands í lagi? SAF, Ferðaþjónustudagurinn á Visir.is (frá 01:09:00)

21. september 2019 - Hvað gerði Thomas Cook rangt?, Viðskipti á Hringbraut

11. september 2019 - Þjónustulund íslendinga, Bylgjan

27. mars 2019 - Hugmyndin að baki vörumerkjastefnu WOW air, Mbl.is

19. júlí 2018 - Auglýsingaherferð Íslandsbanka vekur heimsathygli, Bylgjan

1. febrúar 2018 - Árangursríkt markaðsstarf, Samtök Atvinnulífsins

11. apríl 2017 - Met dagur hjá Íslandsbanka eftir auglýsingaherferð sem vakti athygli. Visir.is/Bylgjan

1. nóvember 2014 - Nova 7 ára

18. september 2012 - Markaðssetning skiptir máli, Bylgjan

1. janúar 2012 - Upplifun viðskiptavina ræður styrk vörumerkis, Frjáls Verslun

Myndir úr ýmsum áttum

 

Omar Johnson er fyrrum markaðsstjóri Beats by Dr. Dre og yfirmaður markaðsmála hjá Apple. Hann hélt mjög áhugaverðan fyrirlestur á vegum Origo þar sem áherslan var á að finna innsæi og skapa sterk vörumerki.


Guðmundur Arnar með Les Binet

Guðmundur með Les Binet haustið 2019 en kenningar hans og Peter Field eru að hafa mikil áhrif á skilning okkar á virkni auglýsinga.

Þjónustunámskeið, The Ritz-Carlton

Jeff Hargett frá   leiðtogaskóla The Ritz-Carlton í september 2019 með Guðmundi. Hann kenndi þjónustu  fyrir fullu húsi á Hilton Nordica á vegum Markaðsakademíunnar.

Guðmundur og Klara með Rory Sutherland hjá Ogilvy í Bretlandi nýlega en hann hefur verið áberandi við að miðla boðskap Behavioural Economics innan markaðssamfélagsins. 

Með Seth Godin þegar hann kom til Íslands.

 
Í kvöldverð með Peter Fader, Customer Centricity brautryðjanda.
 
 
Guðmundur hefur oft unnið með Kevin Lane Keller, sem er helsti vörumerkjafræðingur heims. Þessi mynd er tekin þegar hann aðstoðaði Íslandsbanka.
 
 
Martin Lindstrom hélt áhugaverðan fyrirlestur á Íslandi fyrir nokkrum árum. 
 
Icelandair að taka við verðlaunum sem markaðsfyrirtæki ársins hjá Ímark.
 
Fyrsta flug WOW air til Parísar með fjölmiðlafólk.
 
Þegar Nova var valið markaðsfyrirtæki ársins hjá Ímark var að sjálfsögðu tekin sjálfa.
 
Með Scott Bedbury sem var markaðsstjóri Starbucks þegar kaffihúsið byrjaði að vaxa og varð ,,The third place" en jafnframt var hann markaðsstjóri Nike þegar ,,Just Do It" slagorðið og markaðsstefnan varð til.
 
 

Leiðbeinandi

Guðmundur Arnar Guðmundsson, Akademias