Lýsing námskeiðs og skráning

Stafræn umbreyting og leiðtogar

Stafrænar umbreytingar eru að gjörbreyta hvernig fyrirtæki starfa, hvernig neytendur versla og upplifa og hvernig starfsmenn vinna. Drifkraftur breytinga er alltaf að aukast og nú þegar er ljóst að flest störf munu breytast og skapandi eyðilegging mun gera úrelt þau fyrirtæki sem leitast ekki við að breytast í takt við tímann. Mikil þörf er fyrir stafræna leiðtoga sem skilja að stafræn umbreyting er ekki vegferð sem snýst um útlit heldur kjarnafærni fyrirtækisins.

Um hvað er námskeiðið?
Námskeiðið fjallar annars vegar um af hverju stafrænar umbreytingar munu hafa gríðarleg áhrif og eru tækifæri fyrir framtíðina og hins vegar um hlutverk stafræns leiðtoga í fyrirtækjum. Farið er yfir hvernig stafrænn leiðtogi þarf að búa til þverfagleg teymi sem hafa umbreytingar að leiðarljósi og miða að því að skerpa á kjarnafærni fyrirtækja.

Fyrir hverja?
Námskeiðið er fyrir þá sem vilja kynna sér þær umbreytingar sem eru að verða vegna stafrænnar þróunar og þá sem vilja leiða breytingar sem byggja á stafrænni umbreytingu innan fyrirtækja.

Námskaflar og tími:

  • Stafræna byltingin - 11 mínútur.
  • Drifkraftar til breytinga - 12 mínútur.
  • Tækifæri stafrænna breytinga - 9 mínútur.
  • Þörfin fyrir leiðtoga - 11 mínútur.
  • Skipulag og fókus - 8 mínútur.
  • Að byggja upp teymin - 15 mínútur.

Heildarlengd: 66 mínútur.

Verð:
24.000 kr.

TILBOÐ út mars!
Árs áskrift af yfir 140 MasterClass námskeiðum Akademias. Verð: 99.000 kr. Sjá nánar hér.

Hagnýtar upplýsingar

  • Fjarnám á netinu, byrjaðu að læra núna!
  • Lærðu á þínum hraða, eins oft og hvar og hvenær sem er yfir 12 mánaða tímabil.
  • Námskeiðið er í boði á sérkjörum fyrir vinnustaði - sjá nánar.
  • Mörg stéttarfélög veita styrk fyrir allt að 100% af verði námskeiðs.
  • Vinnustaðir geta sótt um styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð inni á www.attin.is – óháð starfsmanni.
  • Vinnumálastofnun veitir möguleika á styrk fyrir skjólstæðinga sína fyrir allt að 75% af verði námskeiðs.

 

Leiðbeinandi

Dr. Eyþór Ívar Jónsson

Dr. Eyþór Ívar Jónsson, forseti Akademias, er sérfræðingur á sviði stjórnunar og viðskiptafræða og einn reyndasti MBA kennari Norðurlandanna.
Eyþór kennir námskeiðin miniMBA – Fjármál fyrirtækja, fjártækni og árangursstjórnun og Leiðtogi í fjármögnun og fjárfestingum, hjá Akademias.

Hoobla - Systir Akademias