Lýsing námskeiðs og skráning

Markmiðasetning

Á þessu námskeiði er fjallað um markmiðasetningu, tímastjórnun og venjur. Farið er vel yfir þau skref sem liggja að baki farsællrar markmiðasetningar og fjallað um ákveðnar gildrur sem algengt er að falla í þegar fólk setur sér markmið. Einnig verður farið vel yfir tímastjórnun og kenndar leiðir til að hámarka nýtingu á tíma.

Venjur skapa stóran hluta af okkar daglega lífi og geta haft mikil áhrif á heilsu okkar, líðan og árangur. Fjallað verður um venjur og leiðir til að skrásetja þær og losa sig við slæmar venjur og tileinka sér nýjar og betri.

Markmiðið með þessu námskeiði er að veita þátttakendum innblástur og hvatningu til að setja sér markmið, leyfa sér að dreyma stórt og gefa þeim verkfæri sem hámarka líkur á árangri.

Á námskeiðinu er m.a. fjallað um:

  • Hvað er farsæl markaðssetning og hvað liggur að baki hennar?
  • Hugsunarháttur
  • Hvernig látum við drauma okkar rætast?
  • Mikilvægi skemmtilegra markmiða
  • Forgangsröðun og mælieiningar
  • Andlegt jafnvægi. Hvað er aðkallandi og hvað er mikilvægt?
  • Pomodoro tímastjórnunartæki
  • Lífstílsbreytingar og venjuvaki
  • Samanburður og umburðarlyndi
  • Samskipti og sjálfstraust

Hagnýt atriði:

  • Fjarnám á netinu, byrjaðu að læra núna!
  • Lærðu á þínum hraða, hvar og hvenær sem er.
  • Skráning gefur aðgang að náminu í 12 mánuði og hægt er að horfa og læra eins oft og fólk kýs á tímabilinu.
  • Námið er í 6 hlutum og er um klukkustund í heildina. 
  • Verð 19.000 kr
  • Tilboð! Kauptu fjögur MasterClass námskeið að eigin vali á 59.900 kr. eða sex námskeið á 99.900 kr.
  • Námskeiðið er einnig í boði á sérkjörum fyrir fyrirtæki og stofnanir, þá aðgengilegt fyrir alla starfsmenn í gegnum netið en jafnframt sem nám inni í kennslukerfi fyrirtækja (sbr. Eloomi). Hafið samband við gudmundur@akademias.is fyrir nánari upplýsingar. Sjá meira um fræðsluefni og fyrirtækjaskóla Akademias hér.
  • Mörg stéttarfélög veita styrk fyrir allt að 90% af námskeiðsgjaldi. Fyrirtæki geta einnig sótt um styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð (óháð starfsmanni) inná www.attin.is
  • Vinnumálastofnun veitir jafnframt möguleika á styrk fyrir skjólstæðinga sína fyrir allt að 75% af námskeiðsgjaldi.
  • Sendu okkur línu ef við getum aðstoðað akademias@akademias.is

Fyrir hverja?

Alla þá sem vilja ná árangri í lífi og starfi, efla hjá sér markmiðasetningu og nýta tíma sinn betur.

Leiðbeinendur:

Dr. Erla Björnsdóttir er sálfræðingur og doktor í lif- og læknavísindum. Erla hefur sérhæft sig í rannsóknum, greiningu og meðferð á svefni og svefnvanda og er stofnandi og framkvæmdastjóri Betri svefns.

Þóra Hrund Guðbrandsdóttir er markaðsfræðingur og er einnig að ljúka meistaranámi í stjórnun og stefnumótun. Ennfremur er hún lærður markþjálfi og starfar í dag sem framkvæmdastjóri Ímark.

Saman stofnuðu Erla og Þóra Munum útgáfu og gefa árlega út dagbækur sem eru sérstaklega hannaðar til að efla markmiðasetningu, hámarka nýtingu á tíma og hvetja til jákvæðrar hugsunar. Þær hafa haldið fjölda fyrirlestra og verið með vinnustofur um þessa þætti.

 

Leiðbeinendur

Dr. Erla Björnsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Betri svefns

Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Ímark

Hoobla - Systir Akademias