Hugbúnaður og upplýsingatækni
Google workspace djúpköfun
Google Workspace er öflug skrifstofusvíta, full af hugbúnaði til að einfalda og bæta rekstur fyrirtækja. Workspace fæddist á Netinu og býr því öll þar. Workspace hét áður Google Apps og svo G-Suite. Svítan talar vel við aðrar lausnir á Netinu og er hægt að tengja hana við ýmislegt. Um 6 milljónir fyrirtækja og um 120 milljónir nemenda nota Workspace í dag. Workspace býður upp á póst, spjall, fjarfundi, ritvinnslu, glærugerð, gluggareikni, gagnasvæði og ýmislegt fleira sniðugt. En hvernig er best að stilla og nota Workspace?