Lýsing námskeiðs og skráning

Stjórnandinn þú

Að vera stjórnandi krefst fjölbreyttra eiginleika frá einstaklingum, eiginleikar sem ýmist eru meðfæddir eða lærðir. Fáir búa yfir öllum þessum eiginleikum í byrjun og er námskeiðið Stjórnandinn þú hannað með það að leiðarljósi að efla sérstaklega nýja stjórnendur í starfi. Að vera nýr stjórnandi kallar á nýjar áskoranir sem meðal annars snúa að mannauði, stjórnunarstílum og hvað það þýðir að vera leiðtogi.

Stjórnandinn þú er nýtt vendinámskeið hjá Akademias sem samanstendur annar vegar af rafrænum fyrirlestrum og hins vegar vinnustofum sem haldnar eru með reglulegu millibili hjá Akademias þar sem unnið er með viðfangsefni fyrirlestranna. Hver vinnustofa er tæpar 2 klst. að lengd og er haldin í stað- og fjarnámi.

Námskeiðið er brotið niður í tvo hluta en hverjum hluta lýkur með viðeigandi vinnustofu. Innan hvers hluta eru svo fjölbreytt minni námskeið þar sem ákveðin viðfangsefni eru tekin fyrir, viðfangsefni eins stjórnunarstílar, mannauðsstjórnun, að takast á við ágreining og coaching.

Skipulag námsins:

  1. Leiðtoginn og stjórnunarstílar
  2. Stjórnun lykilverkefna og markmiðasetning OKR
  3. Stafræn umbreyting og leiðtogar
  4. Mannauðsstjórnun og breytingar
  5. Vinnustofa
  6. Aðferðafræði coaching
  7. Tilfinningagreind og hluttekning
  8. Að takast á við ágreining
  9. Meðvirkni á vinnustað
  10. Samskipti og samræður
  11. Vinnustofa

Vendinámskeiðið er 15klst og er inn í því 2x2klst vinnustofur sem þátttakendur fá aðgang að og geta bókað sig á en upplýsingar um næstu vinnustofu má finna hér verðar birtar í kennslukerfi námsins og sendar þá þátttakendur.

Vinnustofur

Vinnustofur eru í stað- og fjarnámi á ákveðnum tíma en hver vinnustofa er 2 klst.

Hver vinnustofa er í boði 2 sinnum á ári, að hausti og vori. Í vinnustofunni er unnið með þau viðfangsefni sem farið er í hvorum hluta fyrir sig.

Verð: 159.000- (99.000 fyrir FVH meðlimi).

Mörg stéttarfélög veita styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð fyrir allt að 90% af náminu en jafnframt eru aðrar styrkjaleiðir færar fyrir fyrirtæki, óháð starfsmanni (sjá www.attin.is). Hafðu samband og við aðstoðum akademias@akademias.is.

 

Leiðbeinandi

Dr. Eyþór Ívar Jónsson

Hoobla - Systir Akademias