Ofurkraftar í starfi 14. október
Námskeiðið hefst 14. október
6 ofurkraftar sem spara tíma, minnka óvissu og gera þig áhrifameiri í daglegu starfi með aðstoð gervigreindar.
Af hverju þetta námskeið?
Þú þekkir þetta:
Á þessu námskeiði lærir þú að nota gervigreind til að styrkja rótgróið og skilvirkt vinnulag: skýr fyrirmæli, betra vikuskipulag, áreiðanlegar samantektir, skapandi ferli og einfaldar lausnir sem spara tíma.
Þú ferð heim með
Dagskrá: 6 ofurkraftar (6×3 klst.)
Fyrir hvern: Allt starfsfólk sem vill klára meira, vinna markvissar og draga úr endurtekningu – án þess að verða tæknisérfræðingar.
Niðurstaða: Þú ferð heim með verkfærasett, sniðmát og vinnulag sem nýtist strax á mánudag.
Námskeiðið hefst 14. október og er kennt á miðvikudögum 13:00 – 16:00 og fimmtudögum 09:00 - 12:00 í þrjár vikur.
Námið er í boði sem staðnám í Borgartúni 23 eða fjarnám (í beinni á netinu eða með upptökum þegar hentar) eða sem blönduð námsleið.
Námskeiðið er í sex hlutum, hver hluti þrjár klukkustundir og því samtals 18 klukkustundir að lengd.
Námsmat: Einstaklingsverkefni: „Mitt verkfærasett og mitt vinnulag“ (sniðmát + bott + vikukerfi + þekkingargrunnur + ein frumgerð + 14 daga plan).
Verð: 299.000 –
Takmarkað sætaframboð. Tryggðu þér sæti áður en einhver annar gerir það.
Ofurkraftar eða námskeiðið gefins
Við trúum ekki á að mæla mætingu – við mælum árangur.
Flest námskeið enda þegar fólk labbar út úr salnum, en við göngum lengra. Við trúum því að þú (eða starfsfólkið þitt) öðlist raunverulega ofurkrafta í starfi að námskeiði loknu. Ef við stöndum ekki við það, þá borgar þú ekki krónu.
Hvernig virkar þetta?
Við mælum sjálfstraust og getu í upphafi og lok námskeiðs. Ef viðkomandi hefur ekki öðlast ofurkrafta að námskeiði loknu þá skilar viðkomandi einfaldlega ekki lokaverkefninu og lýkur ekki námskeiðinu. Einungis þeir sem sannarlega ljúka námskeiðinu greiða fyrir námskeiðið og hafa þar með öðlast ofurkrafta í starfi.
Af hverju gerum við þetta?
Vegna þess að við vitum að aðferðirnar okkar virka. Við viljum að vinnuveitendur og starfsmenn sjái strax mælanlegan ávinning:
Engin framför = Ekkert gjald. Við treystum okkur til að lofa því
Ef þú vilt gangast undir þetta veðmál með okkur sendir þú póst á thorarinn@akademias.is
Dr. Eyþór Ívar Jónsson
Þórarinn Hjálmarsson
Reiknaðu þitt verð á námskeiðinu að frádregnum mögulegum styrkjum þíns stéttarfélags
*Veldu félag til að sjá niðurgreiðslu og endanlegt verð.