Lýsing námskeiðs og skráning

Ofurkraftar í starfi

Tryggðu þér sæti á þetta námskeið með 15% afslætti.
Til að nýta tilboðið er kóðinn sumar26 settur inn í skráningaferlinu og við það færð þú 15% afslátt. Tilboðið gildir til miðnættis 6. júlí 2026.

6 ofurkraftar sem spara tíma, minnka óvissu og gera þig áhrifameiri í daglegu starfi með aðstoð gervigreindar. 

Af hverju þetta námskeið?

Þú þekkir þetta:

  • skilaboðaflóð og fundir sem skilja eftir “opin mál”
  • vikan full – en það sem skiptir mestu máli situr á hakanum
  • þú leitar að upplýsingum sem þú veist að “einhvers staðar eru”
  • hugmyndavinna sem endar í umræðu en ekki afurð
  • endurtekin handavinna sem mætti gera einfaldar

Á þessu námskeiði lærir þú að nota gervigreind til að styrkja rótgróið og skilvirkt vinnulag: skýr fyrirmæli, betra vikuskipulag, áreiðanlegar samantektir, skapandi ferli og einfaldar lausnir sem spara tíma.

Þú ferð heim með

  • 10–15 sniðmát að skýrum fyrirmælum (promptum) sem virka í raun
  • 1–2 botta fyrir endurtekin verkefni
  • vikuyfirferð + daglega yfirferð (kerfi sem heldur)
  • þekkingargrunn í NotebookLM (með heimildum) + spurningasnið
  • hugmyndabanka + valramma (til að velja bestu hugmyndirnar)
  • frumgerð að einfaldri lausn / vinnuferli sem sparar tíma
  • hackaþon-afurð + 14 daga innleiðingaráætlun

Dagskrá: 6 ofurkraftar (6×3 klst.)

  1. Ofurkraftur: Spyrja rétt – fá betri niðurstöður og búa til botta
  2. Ofurkraftur: Vinna vikuna – finna sóun, forgangsraða og klára
  3. Ofurkraftur: Rétt þekking, betri ákvarðanir – þekkingargrunnur og rannsóknir
  4. Ofurkraftur: Skapandi ferli – hugmyndavinna og hraðari hönnunarsprettir
  5. Ofurkraftur: Einfaldar lausnir – smíða vinnuferli/frumgerðir sem spara tíma
  6. Ofurkraftur: Samstarf og lausn vandamála – hackaþon sem setur þetta í notkun

Fyrir hvern: Allt starfsfólk sem vill klára meira, vinna markvissar og draga úr endurtekningu – án þess að verða tæknisérfræðingar.
Niðurstaða: Þú ferð heim með verkfærasett, sniðmát og vinnulag sem nýtist strax á mánudag.

Hagnýtar upplýsingar

Námskeiðið hefst 24. ágúst og er kennt á mánudögum 13:00 – 16:00 og þriðjudögum 09:00 -  12:00 í þrjár vikur.

Námið er í boði sem staðnám í Borgartúni 23 eða fjarnám (í beinni á netinu eða með upptökum þegar hentar) eða sem blönduð námsleið. 

Námskeiðið er í sex hlutum, hver hluti þrjár klukkustundir og því samtals 18 klukkustundir að lengd.

Námsmat: Einstaklingsverkefni: „Mitt verkfærasett og mitt vinnulag“ (sniðmát + bott + vikukerfi + þekkingargrunnur + ein frumgerð + 14 daga plan).

Verð: 299.000 –

Takmarkað sætaframboð. Tryggðu þér sæti áður en einhver annar gerir það.


Ofurkraftar eða námskeiðið gefins

Við trúum ekki á að mæla mætingu – við mælum árangur.

Flest námskeið enda þegar fólk labbar út úr salnum, en við göngum lengra. Við trúum því að þú (eða starfsfólkið þitt) öðlist raunverulega ofurkrafta í starfi að námskeiði loknu. Ef við stöndum ekki við það, þá borgar þú ekki krónu.

Hvernig virkar þetta?
Við mælum sjálfstraust og getu í upphafi og lok námskeiðs. Ef viðkomandi hefur ekki öðlast ofurkrafta að námskeiði loknu þá skilar viðkomandi einfaldlega ekki lokaverkefninu og lýkur ekki námskeiðinu. Einungis þeir sem sannarlega ljúka námskeiðinu greiða fyrir námskeiðið og hafa þar með öðlast ofurkrafta í starfi.

Af hverju gerum við þetta?
Vegna þess að við vitum að aðferðirnar okkar virka. Við viljum að vinnuveitendur og starfsmenn sjái strax mælanlegan ávinning:

  • Margfaldan vinnuhraða.
  • Betri lausnir.
  • Meiri gæði í öllu efni.
  • Algjört öryggi í notkun gervigreindar.

Engin framför = Ekkert gjald. Við treystum okkur til að lofa því

Ef þú vilt gangast undir þetta veðmál með okkur sendir þú póst á thorarinn@akademias.is


Sjá reiknivél hér að neðan hvaða áhrif styrkir geta haft á verð námskeiðs

Mörg stéttarfélög veita styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð fyrir allt að 90% af náminu en jafnframt eru aðrar styrkjaleiðir færar fyrir fyrirtæki, óháð starfsmanni (sjá www.attin.is). Hafðu samband og við aðstoðum akademias@akademias.is.

Umsagnir

Heiða Dís Bjarnadóttir, markaðssérfræðingur hjá Flügger ÍslandiÉg skráði mig á Ofurkrafta í starfi vegna þess að mig langaði að skilja betur hvað gervigreind gæti gert fyrir mig í vinnunni. Ég bjóst ekki við að námskeiðið myndi breyta vinnuaðferðunum mínum jafn mikið og raun ber vitni. Það sem stóð upp úr var hversu hagnýtt námið var. Í stað þess að læra eingöngu um tæknina fékk ég tækifæri til að byggja lausn sem tengdist mínu eigin starfi. Úr varð VinnuSteve, AI-aðstoðarmaður sem hjálpar mér meðal annars með þýðingar, þekkingarstjórnun, vinnuferla og markaðsverkefni. Það sem skiptir mig mestu máli er að verkefnið lauk ekki með námskeiðinu. Ég nota lausnina áfram í daglegri vinnu og hef haldið áfram að þróa hana og bæta eftir að náminu lauk. Ofurkraftar í starfi gáfu mér ekki bara innsýn í gervigreind heldur líka sjálfstraust til að prófa, byggja og finna leiðir til að nýta tæknina á raunverulegan hátt í mínu starfi.
Heiða Dís Bjarnadóttir, markaðssérfræðingur hjá Flügger Íslandi

 

Leiðbeinendur

Dr. Eyþór Ívar Jónsson

Rúna Guðrún Loftsdóttir

Tryggvi Freyr Elínarson, þróunarstjóri og sérfræðingur tæknilausna Datera

Þórarinn Hjálmarsson

Umsagnir

Heiða Dís Bjarnadóttir, markaðssérfræðingur hjá Flügger ÍslandiÉg skráði mig á Ofurkrafta í starfi vegna þess að mig langaði að skilja betur hvað gervigreind gæti gert fyrir mig í vinnunni. Ég bjóst ekki við að námskeiðið myndi breyta vinnuaðferðunum mínum jafn mikið og raun ber vitni. Það sem stóð upp úr var hversu hagnýtt námið var. Í stað þess að læra eingöngu um tæknina fékk ég tækifæri til að byggja lausn sem tengdist mínu eigin starfi. Úr varð VinnuSteve, AI-aðstoðarmaður sem hjálpar mér meðal annars með þýðingar, þekkingarstjórnun, vinnuferla og markaðsverkefni. Það sem skiptir mig mestu máli er að verkefnið lauk ekki með námskeiðinu. Ég nota lausnina áfram í daglegri vinnu og hef haldið áfram að þróa hana og bæta eftir að náminu lauk. Ofurkraftar í starfi gáfu mér ekki bara innsýn í gervigreind heldur líka sjálfstraust til að prófa, byggja og finna leiðir til að nýta tæknina á raunverulegan hátt í mínu starfi.
Heiða Dís Bjarnadóttir, markaðssérfræðingur hjá Flügger Íslandi

Reiknivél Styrkja

Reiknaðu þitt verð á námskeiðinu að frádregnum mögulegum styrkjum þíns stéttarfélags

kr.

*Veldu félag til að sjá niðurgreiðslu og endanlegt verð.