Næsta námskeið 8. apríl 2021
miniMBA: Fjármál fyrirtækja, fjártækni og árangursstjórnun
Í fyrsta skipti á Íslandi er boðið upp á miniMBA, með áherslu á fjármál fyrirtækja, fjártækni og árangursstjórnun. Námið er samstarfsverkefni fjölda sérfræðinga og fyrirtækja sem vilja tryggja að Íslenskt atvinnulíf verði í farabroddi þegar kemur að fjártæknilæsi og árangursstjórnun. Fjártækni er að umbreyta fjármálamörkuðum og rekstri fyrirtækja. Stjórnendur fyrirtækja verða leggja áherslu á endurskipulagningu og árangursstjórnun í ljósi tæknibreytinga til þess að leiða fyrirtæki til framtíðar.
Leiðbeinendur námsins eru 15 - 20 talsins sem eru sérfræðingar í fjármálum, fjártækni og árangursstjórnun. Hver áfangi hefur á bilinu 2 – 3 leiðbeinendur sem segja frá eigin reynslu og raundæmum.
Umsjónarmaður er dr. Eyþór Ívar Jónsson, einn reyndasti MBA kennari Norðurlandanna sem hefur verið leiðandi í MBA náminu í Copenhagen Business School í fimmtán ár og kennt MBA við fjölda háskóla. Eyþór hefur stýrt endurskipulagningu á fyrirtækjum í tvo áratugi og stýrt hröðlum sem hafa lagt áherslu á sprotafyrirtæki í fjártækni.
miniMBA í fjármálum fyrirtækja, fjártækni og árangursstjórnun snýst um að skapa þekkingu, færni og leikni sem tengist fjármála- og árangurslæsi stjórnenda og sérfræðinga hvort sem er í einkageiranum, hjá hinu opinbera eða í þriðja geiranum. Í miniMBA lærir fólk um mikilvægi fjártækni (fintech) fyrir breytt fjármálaumhverfi, fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja, mikilvæga árangursmælikvarða og árangursstjórnun og jafnframt drifkrafta verðmætasköpunar í heimi fjórðu iðnbyltingarinnar.
Aðferðafræðin byggir á stuttum hópverkefnum, fyrirlestrum og samtölum sérfræðinga. Aðferðafræðin leggur áherslu á samskiptahæfni, lausn vandamála og greiningu tækifæra, gagnrýna- og skapandi hugsun.
Leiðbeinendur:
Katrín Júlíusdóttir – framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja og fv. ráðherra
Heiðar Guðjónsson – forstjóri Sýnar
Georg Lúðvíksson – framkvæmdastjóri Meniga
Kristján Ingi Mikaelsson - framkvæmdastjóri Rafmyntaráðs Íslands
Auður Björk Guðmundsdóttir - framkvæmdastjóri Two Birds ehf.
Ingvar Steinn Birgisson - director of Global Solutions, Creditinfo Group
Hulda Ragnheiður Árnadóttir – framkvæmdastjóri Náttúruhamfaratrygging Íslands og stjórnarformaður FKA
Gunnlaugur Jónsson – framkvæmdastjóri Fjártækniklasans
Viðar Þorkelsson – fv. framkvæmdastjóri Valitor og Reitir
Danielle Neben – framkvæmdastjóri ePassi
Gunnar Páll Tryggvason – framkvæmdastjóri Alfa Framtak
Ingi Rafn Sigurðsson – framkvæmdastjóri Karolína Fund
Baldur Snorrason – forstöðumaður eignastýringar hjá Festa lífeyrissjóður
Haraldur Bjarnason – framkvæmdastjóri Auðkenni
Björn Hr. Björnsson – stofnandi og framkvæmdastjóri Payday
Árni Sigurðsson, framkvæmdastjóri stefnumótunar og stefnumarkandi rekstrareininga hjá Marel.
Áfangar:
Fjártækni til framtíðar
Bylting fjártækni
Blockchain og rafeyrir
Fjármál og tækni – tækifæri og ógnanir
Fjártæknifyrirtæki
Endurskipulagning fyrirtækja
Fjárhagsuppbygging og rekstur
Fjármögnun og framtíðarfjárfesting
Innri vöxtur, sameiningar og uppkaup
Fjárhagsleg endurskipulagning
Árangursmælikvarðar
Árangur í ólíkum víddum
Nýir mælikvarðar á árangur
Teymi, ferli og markmið
Innleiðing árangusviðmiða
Drifkraftar verðmætasköpunar
Verðmætadrifin stjórnun
Verðmat og áhrifaþættir
Verðmæti fyrir viðskiptavininn
Tækni og verðmætasköpun
Árangursstjórnun
Árangursstjórnunarkerfi
Áhættustjórnun
Áhrif umbreytinga
Árangursrík fyrirtæki
HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR
Næsta námskeið byrjar 8. apríl. Kennt á miðvikudögum 13:00 – 16:30 og fimmtudögum 9:00 – 12:00 í 5 vikur. Kennsla fer fram hjá Akademias í Borgartúni 23, 3 hæð.
Námið er í boði sem staðnám, fjarnám (í beinni á netinu eða með upptökum þegar hentar) eða sem blönduð námsleið. Námið er 40 klst., 5 áfangar, 7 klst. hver áfangi og próf.
Námsmat: Einstaklingsverkefni, hópverkefni og heimapróf.
Námsgjöld: 390.000 kr. Snemmskráningartilboð, takmarkaður sætafjöldi: 290.000 kr.
Skrá mig, miniMBA: Fjármál, Fjártækni og árangursstjórnun 8. apríl
Leiðbeinendur
Árni Sigurðsson, framkvæmdastjóri stefnumótunar og stefnumarkandi rekstrareininga hjá Marel
Heiðar Guðjónsson – forstjóri Sýnar
Georg Lúðvíksson, framkvæmdastjóri Meniga
Kristján Ingi Mikaelsson, framkvæmdastjóri Rafmyntaráðs Íslands
Auður Björk Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Two Birds ehf.
Ingvar Steinn Birgisson, Director of Global Solutions, Creditinfo Group
Hulda Ragnheiður Árnadóttir – framkvæmdastjóri Náttúruhamfaratrygging Íslands og stjórnarformaður FKA
Gunnlaugur Jónsson – framkvæmdastjóri Fjártækniklasans
Viðar Þorkelsson – fv. framkvæmdastjóri Valitor og Reitir
Danielle Neben – Framkvæmdastjóri ePassi
Gunnar Páll Tryggvason – framkvæmdastjóri Alfa Framtak
Ingi Rafn Sigurðsson – framkvæmdastjóri Karolína Fund
Baldur Snorrason – Forstöðumaður eignastýringar hjá Festa lífeyrissjóður
Haraldur Bjarnason – framkvæmdastjóri Auðkenni
Björn Hr. Björnsson – stofnandi og framkvæmdastjóri Payday
Katrín Júlíusdóttir – framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja og fv. ráðherra