Lýsing námskeiðs og skráning

Leiðtogi í rekstrarumbótum

Aukin framleiðni og nýsköpun á öllum sviðum rekstursins

Rekstur fyrirtækja og stofnana stendur frammi fyrir stöðugri þörf á að ná betri árangri með sama – eða jafnvel minna – fjármagni. Hvort sem um er að ræða opinbera þjónustu eða einkarekstur, er ljóst að hefðbundin nálgun við sparnað og árangursmat dugar ekki lengur. Það sem vantar er kerfisbundin og mælanleg nálgun þar sem bæði kostnaðarhliðin og möguleikar á nýjum verðmætum eru skoðaðir í samhengi.

Námskeiðið býður upp á slíka nálgun. Það er hannað fyrir stjórnendur og lykilstarfsfólk sem vilja hámarka nýtingu fjármuna, bæta þjónustu og stuðla að markvissum rekstri með aðferðum sem hafa verið prófaðar og notaðar af stórum sem smáum aðilum – jafnt í opinbera geiranum sem í samkeppnisrekstri.

Sérstök áhersla er lögð á aðferðafræði sem felur í sér að breytingar og umbætur séu ekki aðeins knúnar áfram af innsæi, heldur einnig með skýrri greiningu, mælingum og framvindueftirliti. Þessi nálgun hefur þegar sannað sig hjá leiðandi fyrirtækjum á borð við Marel, Ölgerðina og Össur, sem og í opinberum fyrirtækjum á borð við Landsbankann og Landsvirkjun, þar sem nýsköpun og hagræðing þurfa að haldast í hendur við ábyrgð og gagnsæi.

Í námskeiðinu læra þátttakendur að greina raunveruleg umbótatækifæri í eigin rekstri, meta áhrif þeirra með fjárhagslíkönum og þróa aðgerðaáætlanir sem styðjast við Business Model Canvas og nútímaleg verkefna- og breytingastjórnunartól. Það sem áður var kostnaður er þannig umbreytt í tækifæri, og áhersla lögð á að hámarka árangur með sem mestri framleiðni og sem minnstri sóun.

Námskeiðið hentar jafnt þeim sem vilja leita hagræðingar í óbreyttri starfsemi sem og þeim sem vilja byggja upp nýjar tekjuleiðir með núverandi auðlindum og mannauði. Í stað þess að einblína á niðurskurð er lögð áhersla á að horfa á verðmætasköpunina í heild og spyrja: Hvernig getum við skapað meiri virði með sömu eða minni fjármunum?

Markmið námskeiðsins

Að veita þátttakendum færni og kenna aðferðir til að:

  • Innleiða hnitmiðaða aðferðafræði til að auka framleiðni og nýsköpun í starfandi fyrirtækjum og stofnunum
  • Skilgreina tækifæri til að bæta rekstur án þess að auka útgjöld.
  • Koma auga á nýjar tekjuleiðir og hámarka þjónustu með sama eða minni tilkostnaði.
  • Þróa viðskiptamódel og framkvæmdaáætlanir sem skila mælanlegum árangri.

Efni og uppbygging

Vika 1:

  • Hvað er mæld og stjórnuð hagræðing og hvernig getur aðferðafræðin nýst í fjölbreyttu rekstrarumhverfi?
  • Greining á rekstrartækifærum innan starfseminnar – bæði kostnaðar- og tekjuhliðin.
  • Forgangsröðun umbóta, gerð og útfærsla aðgerðaáætlana.

Vika 2:

  • Fjárhagsleg greining og þróun rekstrarlíkana til að meta áhrif breytinga.
  • Hvernig má hámarka arðsemi í núverandi rekstri með kerfisbundinni nálgun?
  • Aðferðir til að styðja innleiðingu án þess að raska rekstri.

Vika 3:

  • Tekju-, kostnaðar- og áhættumat og núvirðing hagræðingartækifæra.
  • Þátttakendur vinna að verkefnum sem byggja á þeirra eigin rekstrarumhverfi. Skilað til kennara.

Kennari

Páll Kr. Pálsson, MSc í iðnaðarverkfræði, hefur yfir 30 ára reynslu sem frumkvöðull, stjórnandi fyrirækja og stofnana og ráðgjafi í rekstrar- og nýsköpunarverkefnum. Páll hefur kennt við verkfræðideildir HÍ og HR síðan 2002 og starfað með fjölbreyttum fyrirtækjum og stofnunum að umbótaverkefnum undanfarna áratugi.

HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR

Námskeiðið hefst 5. nóvember. Kennt verður í 3vikur á miðvikudögum frá 13-16 og á fimmtudögum frá 9-12.

Námið er í boði sem staðnám í Borgartúni 23 eða fjarnám (í beinni á netinu eða með upptökum þegar hentar) eða sem blönduð námsleið. 

Námið er  18 klst., þ.e. 6 áfangar, 3 klst. hver áfangi.

Námsmat: Hópverkefni í tímum og lokaverkefni sem byggir á raunhæfu verkefni.

Námsgjöld: 269.000 kr. 

Hægt er að greiða með kreditkorti og fá reikning í heimabanka en jafnframt dreifa greiðslum í allt að 6 mánuði. Hafið samband við bokhald@akademias.is til að dreifa greiðslum.

Mörg stéttarfélög veita styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð fyrir allt að 90% af náminu en jafnframt eru aðrar styrkjaleiðir færar fyrir fyrirtæki, óháð starfsmanni (sjá www.attin.is). Hafðu samband og við aðstoðum akademias@akademias.is.

 

Leiðbeinandi

Páll Kr. Pálsson