Leiðtoginn
Leiðtogi í hagnýtri viðburðastjórnun
Hefst 19. maí
Nota skýran skipulagsramma til að brjóta viðburð niður í verkþætti, tímamörk og ábyrgð frá fyrstu hugmynd að lokauppgjöri.
Styðjast við fjárhags- og kostnaðaryfirlit til að setja raunhæfa áætlun og fylgja henni eftir þannig að útgjöld fari ekki úr böndum.
Beita gátlista fyrir framkvæmdardaginn til að tryggja að tæknimál, birgjar, dagskrá og þjónusta gangi snurðulaust.
Nota samræmt samskipta- og upplýsingaflæði við teymi og samstarfsaðila svo allir viti hlutverk sitt og tímasetningar.
Fylgja einföldu mati eftir viðburð til að greina árangur, lærdóm og næstu umbætur.
Lögð er áhersla á hvernig hægt er að hanna viðburði sem eru bæði eftirminnilegir og árangursríkir. Námskeiðið felur í sér kennslu í þeim praktísku þáttum sem viðburðastjóri þarf að hafa í huga, hvort sem hann er að skipuleggja litla eða stóra viðburði.
Aðferðafræðin byggir á fyrirlestrum og samtölum við sérfræðinga sem hafa mikla reynslu af því að skipuleggja og framkvæma viðburði á Íslandi. Aðferðafræðin leggur áherslu á samskiptahæfni og gagnrýna- og skapandi hugsun.
Útgangspunktur námskeiðsins er að hjálpa öllum þeim sem hafa ábyrgð og áhuga á því hanna, skipuleggja og framkvæma viðburði sem eru árangursríkir út frá markmiðum og viðmiðum viðburðastjórnunar.
Umsjón námsins er í höndum Dagmar Haraldsdóttir, sem er einn reynslumesti viðburðastjóri landsins og er frumkvöðull í uppsetningu viðburða á nýjum og skemmtilegum stöðum á Íslandi.
Námskeiðið er hluti af Viðurkenndur verkefnastjóri.
Leiðbeinendur námsins eru sérfræðingar í viðburðastjórnun. Einn til tveir leiðbeinendur halda utan um hvern áfanga sem byggja á reynslusögum og raundæmum.
Meðal gesta verða:
Námskeiðið hefst 19. maí og er kennt á þriðjudögum 13:00 – 16:00 og miðvikudögum 9:00 – 12:00 í þrjár vikur.
Námið er í boði sem staðnám í Borgartúni 23, fjarnám (í beinni á netinu eða með upptökum þegar hentar) eða sem blönduð námsleið.
Námskeiðið er 18 klst., þ.e. 6 áfangar, 3 klst. hver áfangi.
Námsmat: Lokaverkefni - Hönnun og skipulag viðburðar.
Verð: 299.000kr
Sjá reiknivél hér að neðan hvaða áhrif styrkir geta haft á verð námskeiðs
Hægt er að greiða með kreditkorti og fá reikning í heimabanka en jafnframt dreifa greiðslum í allt að 6 mánuði. Hafið samband við bokhald@akademias.is til að dreifa greiðslum.
Mörg stéttarfélög veita styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð fyrir allt að 90% af náminu en jafnframt eru aðrar styrkjaleiðir færar fyrir fyrirtæki, óháð starfsmanni (sjá www.attin.is). Hafðu samband og við aðstoðum akademias@akademias.is.
Dagmar Haraldsdóttir
Dr. Eyþór Ívar Jónsson
Reiknaðu þitt verð á námskeiðinu að frádregnum mögulegum styrkjum þíns stéttarfélags
*Veldu félag til að sjá niðurgreiðslu og endanlegt verð.