Lýsing námskeiðs og skráning

Hraðall - 10 vikna umbreyting – Upphafið á nýrri vegferð!

Í fyrsta skipti munum við bjóða hraðal sem hingað til hefur einvörðungu staðið æðstu stjórnendum til boða.

10 vikna umbreyting er hraðall til þess að efla þína vegferð í lífi og starfi með áherslu á stöðuga þjálfun og menntun sem miðar að því að grípa tækifæri framtíðarinnar. Markmiðið er að hjálpa þér að endurhugsa tilgang og markmið þín með aukinn árangur að leiðarljósi og búa til lærdómsvegferð sem miðar að framþróun í leik og starfi. Hraðallinn er samansettur með það að leiðarljósi að einstaklingar fái tæki, tól og stuðning til þess að hanna og móta sína eigin framtíð og frama.

Hraðallinn samastendur af fimm vinnustofum (í stað- og fjarnámi), þ.m.t. upphafi hraðals og lok hraðals þar sem farið er yfir ferlið og kennt á tæki á tól sem eru notuð í hraðlinum, auk tveggja funda með ráðgjafa sem hjálpar til við að útfæra og raungera markmið.

Lykilþættir:

  1. Upphaf hraðals – 19. janúar – Í upphafi skal endinn skoða!
  2. Persónulegir fundir með ráðgjöfa
  3. Vinnustofur og námskeið
  4. Sjálfsmat og áskoranir - Verkefni
  5. Tengslanet og samhittingur
  6. Lok hraðals – 23. mars -  Upphafið á nýrri vegferð!

10 vikna áætlun í grófum dráttum:

Kafli 1: (Vika 1) – Að undirbúa vegferðina

  • Áhersla á styrkleika, hugarfar og framtíðarsýn
  • Vinnustofa 1 – Upphaf hraðals – Í upphafi skal endinn skoða! – 19. janúar kl. 10:00 – 12:00
  • Fundur með ráðgjafa: Undirbúa vegferðina
  • Sjálfsmat og áskoranir sem varða styrkleika, hugarfar og framtíðarsýn

Kafli 2: (Vika 3) – Að hraða lærdómsferlinu

  • Áhersla á sérhæfð markmið, venjur og lærdómsáætlun
  • Vinnustofa 2 – Kanvas fyrir nýja vegferð – 2. febrúar kl 0:00 – 12:00. Þátttakendur ræða áskoranir.
  • Sjálfmat og áskoranir sem varða góðar og slæmar venjur og lærdómsvegferð

Kafli 3: (Vika 6) – Ný hæfni og sigrar

  • Áhersla á að læra nýja hæfni, ná árangri og fagna sigrum
  • Vinnustofa 3 – Tilfinningagreind og samvinna – 23. febrúar kl. 10:00 – 12:00. Þátttakendur ræða áskoranir.
  • Sjálfsmat og áskoranir sem varða nýja hæfni, mælingu á árangri og endurmat

Kafli 4: (Vika 8) – Framþróun og stefna til framtíðar

  • Áherslu á að endurhugsa tækifæri framtíðarinnar
  • Vinnustofa 4 – Lífshjól og leiðarvísir – 9. mars kl. 10:00 – 12:00. Þátttakendur ræða áskoranir.
  • Sjálfsmat og áskoranir sem varða tækifæri og sameiginlegan ávinning

Kafli 5: (Vika 10 – Upphafið á nýrri vegferð

  • Áhersla á að skipuleggja næstu 10 vikur með vegferð að leiðarljósi
  • Vinnustofa 5 – Upphafið á nýrri vegferð – 23. mars kl. 10:00 – 12:00
  • Fundur með ráðgjafa: Áætlun fyrir næstu 10 vikur
  • Sjálfsmat og áskoranir sem varða endurmat á 10 vikum og tækifærum til framþróunar

HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR

  • Námið er í boði sem staðnám eða fjarnám (í beinni á netinu eða með upptökum þegar hentar) eða sem blönduð námsleið.
  • Námið er  hannað sem 12 klst – 5 x tveggja klst vinnustofur (sjálfsmat, áskoranir og ítarefni) og 2 x 60 mín ráðgjafarfundir.
  • Námsmat: Einstaklingsverkefni
  • Snemmskráningarverð: 269.000kr
  • Hægt er að greiða með kreditkorti og fá reikning í heimabanka en jafnframt dreifa greiðslum í allt að 6 mánuði. Hafið samband við bokhald@akademias.is til að dreifa greiðslum.
  • Mörg stéttarfélög veita styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð fyrir allt að 90% af náminu en jafnframt eru aðrar styrkjaleiðir færar fyrir fyrirtæki, óháð starfsmanni (sjá www.attin.is). Hafðu samband og við aðstoðum akademias@akademias.is.

 

 

Leiðbeinendur

Dr. Eyþór Ívar Jónsson

Þórarinn Hjálmarsson

Reiknivél Styrkja

Reiknaðu þitt verð á námskeiðinu að frádregnum mögulegum styrkjum þíns stéttarfélags

kr.

*Veldu félag til að sjá niðurgreiðslu og endanlegt verð.