Lýsing námskeiðs og skráning

Gervigreind í skólastofunni

Gervigreind er eitt öflugasta verkfæri sem völ er á fyrir kennara sem vilja nýta tímann betur og mæta fjölbreyttum þörfum nemenda með skapandi hætti. Með hjálp mállíkana geta kennarar nú hannað vandað námsefni, aðlagað texta að ólíkum getustigum og skipulagt kennslu á svipstundu. Á námskeiðinu er sjónum beint að hagnýtri nýtingu gervigreindar í daglegu starfi, jafnt við undirbúning kennslu sem og í beinni miðlun til nemenda.

Lögð er áhersla á svokallað gervigreindarlæsi (e. AI Fluency) – að skilja hvernig tæknin virkar svo hægt sé að eiga við hana markviss og árangursrík samskipti. Farið er yfir hvernig nýta megi gervigreindina til að útbúa fjölbreytt námsgögn, allt frá gagnvirkum verkefnum og prófum yfir í einstaklingsmiðaðan stuðning fyrir nemendur með ólíkan bakgrunn eða getu. Jafnframt er fjallað um siðferðileg álitamál og hvernig við þjálfum nemendur í að beita gagnrýni við notkun tækninnar.

Markmið námskeiðsins er meðal annars að nemandi:

  • Kynnist viðmóti helstu mállíkana og læri að eiga árangursrík samskipti við tæknina.
  • Geti nýtt gervigreind til að hanna kennsluáætlanir, verkefni og próf á skjótan og öruggan hátt.
  • Læri að laga texta að ólíkum getustigum og þyngja eða létta námsefni með einföldum skipunum.
  • Öðlist sjálfstraust til að miðla gervigreindarlæsi til nemenda og ræða siðfræði tækninnar af öryggi.
  • Vinni hagnýtar æfingar og búi til eigið námsefni sem nýtist tafarlaust í skólastofunni.

Fyrir hverja? Námskeiðið hentar öllum grunnskólakennurum, stjórnendum og öðru skólafólki sem vill stíga sín fyrstu skref í heimi gervigreindar eða dýpka núverandi þekkingu sína. Hvort sem markmiðið er að kynnast tækninni frá grunni eða fínstilla vinnubrögð til að spara tíma í undirbúningi, þá veitir námskeiðið hagnýt tól sem nýtast strax í starfi.

Um kennarann: Þórarinn Hjálmarsson er sérfræðingur í miðlun þekkingar á sviði gervigreindar með brennandi áhuga á því hvernig tæknin getur eflt einstaklinga. Þórarinn hefur lokið sérhæfðu námi í gervigreindarlæsi (e. AI Fluency) hjá tæknifyrirtækinu Anthropic, sem er meðal fremstu þróunaraðila mállíkana í heiminum.

Með ríka reynslu af skapandi lausnum og stefnumótun á sviði markaðsfræða hefur Þórarinn sérhæft sig í að þýða flókna tækni yfir á mannamál sem nýtist í hinum hversdagslegu aðgerðum. Þórarinn er þekktur fyrir líflega og hagnýta miðlun þar sem markmiðið er alltaf að þátttakendur fari heim með verkfæri sem hægt er að taka í notkun strax að námskeiði loknu.

Ekki er gerð krafa um ákveðið mállíkan fyrir námskeiðið en nemendur þurfa að mæta með tölvu og aðgang að ýmist Chat-GPT, Claude, Gemini eða Copilot.

Hagnýtar upplýsingar

  • Tímalengd: 3 klst.
  • Verð: 29.900 kr.
  • Dagsetningar:
    • 13. Apríl kl. 17-20
    • 7. Maí kl. 17-20
  • Staðsetning: Staðnám hjá Akademías í Borgartúni 23, 3. hæð, eða fjarnám í gegnum Zoom.

Hægt er að greiða með kreditkorti og fá reikning í heimabanka en jafnframt dreifa greiðslum. Hafið samband við bokhald@akademias.is til að dreifa greiðslum.

Mörg stéttarfélög veita styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð fyrir allt að 90% af náminu en jafnframt eru aðrar styrkjaleiðir færar fyrir fyrirtæki (sjá t.d. www.attin.is). Hafðu samband og við aðstoðum asdis@akademias.is

 

Leiðbeinandi

Þórarinn Hjálmarsson