Leiðtoginn
Gervigreind í opinberri þjónustu
Nýtt námskeið - Hefst 9. apríl
Aðgerðardrifnir hæfnisþættir námskeiðsins eru:
Væntingar almennings til opinberrar þjónustu hafa aukist til muna. Krafan um skilvirkni, aðgengi og gagnsæi fer vaxandi, á sama tíma og ríkar skyldur hvíla á hinu opinbera um öryggi gagna, réttindi borgara og lögmæta stjórnsýslu. Gervigreind býður upp á tækifæri til að bæta þjónustu og nýta fjármagn betur – ef rétt er staðið að innleiðingu.
Námskeiðið Gervigreind í opinberri þjónustu veitir stjórnendum, verkefnastjórum og sérfræðingum í opinberum rekstri hagnýta og raunhæfa leiðsögn um hvernig nýta má gervigreind í þjónustu og stjórnsýslu án þess að fórna öryggi, gagnsæi eða trausti almennings.
Að loknu námskeiði munu þátttakendur:
Efnisyfirlit námskeiðsins
Námskeiðið er ætlað:
Fyrirkomulag og hagnýtar upplýsingar
Námskeiðið hefst 9. apríl í þrjár vikur. Kennt er á fimmtudögum kl. 13-16 og föstudögum kl. 9-12.
Kennt verður:
Námið er í boði sem staðnám í Borgartúni 23 eða fjarnám (í beinni á netinu eða með upptökum þegar hentar) eða sem blönduð námsleið.
Námskeiðið er í sex hlutum, hver hluti þrjár klukkustundir og því samtals 18 klukkustundir að lengd.
Námsmat: Einstaklingsverkefni
Verð: 299.000 –
Sjá reiknivél hér að neðan hvaða áhrif styrkir geta haft á verð námskeiðs
Mörg stéttarfélög veita styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð fyrir allt að 90% af náminu en jafnframt eru aðrar styrkjaleiðir færar fyrir fyrirtæki, óháð starfsmanni (sjá www.attin.is). Hafðu samband og við aðstoðum akademias@akademias.is.
Dr. Eyþór Ívar Jónsson
Reiknaðu þitt verð á námskeiðinu að frádregnum mögulegum styrkjum þíns stéttarfélags
*Veldu félag til að sjá niðurgreiðslu og endanlegt verð.