Lýsing námskeiðs og skráning

Facebook / Meta 101

Viltu ná betri tökum á Meta-umhverfinu og læra að nýta bæði Facebook og Instagram á markvissan og faglegan hátt?
Facebook / Meta 101 er hagnýtt og yfirgripsmikið grunnnámskeið sem fer í gegnum bæði uppsetningu og utanumhald í Meta-kerfinu annars vegar og auglýsingakerfi Meta hins vegar.

Námskeiðið er tvískipt þar sem fyrri dagurinn leggur traustan grunn að réttri uppsetningu og stjórnun aðganga, en seinni dagurinn fer ítarlega í auglýsingakerfi Meta og hvernig hægt er að nýta það til að ná raunverulegum árangri.

Þetta námskeið hentar markaðsfólki, eigendum fyrirtækja, verkefnastjórum, frumkvöðlum og öllum þeim sem vilja skilja Meta-umhverfið betur og vinna faglega með það.

Uppbygging námskeiðsins

Dagur 1 – Uppsetning, utanumhald og samþættingar í Meta

Farið er í grunnstoðir Meta-kerfisins og hvernig tryggja má rétta og örugga uppsetningu:

  • Meta Business Manager – uppsetning og yfirsýn
  • Aðgangsstýringar og hlutverk
  • Tengingar við Facebook-síður og Instagram-reikninga
  • Auglýsingaaðgangar og skipulag
  • Skipulag og best practice í utanumhaldi

Áhersla er lögð á að þátttakendur skilji uppbyggingu kerfisins og forðist algeng mistök í aðgangs- og uppsetningarmálum.

 

Dagur 2 – Auglýsingakerfi Meta (Meta Ads Manager)

Seinni dagurinn fer ítarlega í auglýsingakerfið sjálft og hvernig byggja má upp árangursríkar herferðir:

  • Yfirlit yfir Ads Manager
  • Munurinn á „boost“ og auglýsingaherferðum
  • Uppbygging herferða (Campaign – Ad Set – Ad)
  • Markmið herferða
  • Markhópar
  • Fjárhagsáætlanir
  • Skapandi efni og auglýsingauppsetning
  • Mælingar, greining og hagræðing herferða
  • Pixel, Conversion API og grunnmælingar
  • Samþættingar við vefsíður og önnur kerfi

Þátttakendur fá skýra mynd af því hvernig á að setja upp markvissar auglýsingar sem styðja við raunveruleg markmið fyrirtækja.

Markmið námskeiðsins

Að þátttakendur:

  • Öðlist skýran skilning á uppbyggingu Meta-umhverfisins
  • Geti sett upp og stjórnað Meta Business Manager á faglegan hátt
  • Skilji aðgangsstýringar og samþættingar
  • Geti sett upp markvissar auglýsingaherferðir í Ads Manager
  • Þekki muninn á „boost“ og faglegri auglýsingauppsetningu
  • Geti lesið úr helstu mælikvörðum og hagrætt herferðum

Kennari

Ingvar Haraldsson, sérfræðingur hjá Blue Lagoon Skincare
Ingvar hefur víðtæka reynslu af stafrænu markaðsstarfi og hefur aðstoðað fjölda fyrirtækja við uppsetningu, stefnumótun og árangursríkar auglýsingaherferðir í Meta-kerfinu.

HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR

Tímasetning:
Kennt verður þriðjudaginn 28. apríl og fimmtudaginn 30. apríl, kl. 17:00–20:00 báða dagana

Lengd:
2 x 3 klst. (alls 6 klst.)

Verð:
69.900kr

Námsform:
Í boði sem staðnám eða í beinni í gegnum Zoom.

Hægt er að greiða með kreditkorti og fá reikning í heimabanka en jafnframt dreifa greiðslum. Hafið samband við bokhald@akademias.is til að dreifa greiðslum.

Mörg stéttarfélög veita styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð fyrir allt að 90% af náminu en jafnframt eru aðrar styrkjaleiðir færar fyrir fyrirtæki (sjá t.d. www.attin.is). Hafðu samband og við aðstoðum asdis@akademias.is

 

Leiðbeinandi

Ingvar Haraldsson

Reiknivél Styrkja

Reiknaðu þitt verð á námskeiðinu að frádregnum mögulegum styrkjum þíns stéttarfélags

kr.

*Veldu félag til að sjá niðurgreiðslu og endanlegt verð.