Lýsing námskeiðs og skráning

Claude til árangurs

Djúpköfun fyrir fólk sem vill ná raunverulegu valdi á einu tóli

Flestir nota gervigreind eins og leitarvél með betra málfar — henda inn spurningu, taka við svari, halda áfram. Þetta námskeið er fyrir þau sem vilja meira. Claude er ekki bara svarvél; hann er hugsunarfélagi sem getur unnið með löng skjöl, byggt heilar greiningar, smíðað lítil verkfæri og haldið samhengi yfir flókin verkefni — ef þú kannt að vinna með hann.

Þetta er ekki yfirlitsnámskeið um hvað gervigreind er. Þú ferð í gegnum raunveruleg dæmi úr þínu eigin starfi og kemur út með vinnuflæði sem þú getur notað strax daginn eftir. Formið — tvö stutt skipti í viku — er valið með ásetningi: á milli tíma beitir þú því sem þú lærðir, og næsti tími byrjar á því sem virkaði og því sem klikkaði hjá þér.

Námskeiðið er fyrir þig sem:
ert komin yfir grunninn og vilt dýpt frekar en breidd, vinnur með texta, greiningu eða ákvarðanir í starfi, og vilt hætta að nota Claude sem leikfang og byrja að nota hann sem samstarfsmann.

Að námskeiði loknu kanntu að:

  • skrifa fyrirmæli sem fá Claude til að hugsa með þér í stað þess að giska á hvað þú vildir
  • vinna með löng skjöl, gögn og heimildir í einni samfellu án þess að missa þráðinn
  • nota Projects og sérsniðin stíl/persónur til að byggja þér fasta vinnufélaga fyrir endurtekin verk
  • smíða lítil verkfæri og gagnvirk skjöl (Artifacts) án þess að skrifa kóða
  • byggja ákvarðanastuðning — láta Claude véfengja forsendur þínar í stað þess að jánka öllu
  • sjá hvar Claude bregst og hvernig þú sannreynir það sem skiptir máli

Hluti 1 — Að hugsa með Claude

Frá svarvél í hugsunarfélaga. 

Langt samhengi. 

Hluti 2 — Að byggja vinnufélaga

Projects og persónur. 

Artifacts. 

Hluti 3 — Ákvarðanir og aðhald

Claude sem véfengir.

Aðhald og kynning. 

Fyrir hvern: Allt starfsfólk sem vill klára meira, vinna markvissar og draga úr endurtekningu – án þess að verða tæknisérfræðingar.
Niðurstaða: Þú ferð heim með verkfærasett, sniðmát og vinnulag sem nýtist strax á mánudag.

Hagnýtar upplýsingar

Námskeiðið hefst 17. ágúst og er kennt í fjóra daga og lýkur 20. ágúst. Hver kennsludagur er frá kl. 9:00-12:00.

Námið er í boði sem staðnám í Borgartúni 23 eða fjarnám (í beinni á netinu eða með upptökum þegar hentar) eða sem blönduð námsleið. 

Námskeiðið er í fjórum hlutum, hver hluti þrjár klukkustundir og því samtals 12 klukkustundir að lengd.

Námsmat: Einstaklingsverkefni (Þinn aðstoðarmaður)

Verð: 199.000 –

Takmarkað sætaframboð. Tryggðu þér sæti áður en einhver annar gerir það.

 

Leiðbeinendur

Dr. Eyþór Ívar Jónsson

Þórarinn Hjálmarsson

Reiknivél Styrkja

Reiknaðu þitt verð á námskeiðinu að frádregnum mögulegum styrkjum þíns stéttarfélags

kr.

*Veldu félag til að sjá niðurgreiðslu og endanlegt verð.